Núverandi stýrivextir í helstu ávaxtalýðveldum - Heimild: The Economist

Tyrkland - 16.73%

Ísland - 15.00%

Suður Afríka - 11.45%

Brasilía - 11.18%

Argentína - 10.38

Rússland - 10.25%

Pakistan - 10.24%

Kólumbía - 9.75%

Ungverjaland - 8.22%

Indónesía - 8.10%

Á lista Economist yfir 55 lönd eru þetta þau sem eru yfir 8% ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þannig að það var ekkert skrítið að mér myndi detta þetta í hug eftir að kóngurinn hafði talað
http://doctore.blog.is/blog/doctore/entry/484218/

DoctorE (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 13:12

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Afsakið, gleymdi Venesúela - 10.24% ...

En þá á þetta að vera komið sem er yfir 8%.

Baldur Fjölnisson, 25.3.2008 kl. 13:25

3 identicon

Þetta er flottur félagsskapur, Suður-Ameríku löndin þarna og Tyrkland o.fl.

Ég veit ekki betur en þegar vextir eru hækkaðir í Bandaríkjunum eða annars staðar þá falla hlutabréfavísitölur. Hérna ríkur allt upp. Enn ein sönnun þess að þetta virkar öðru vísi hér í okkar hagkerfi. Vaxtahækkun örvar efnahagslífið, gengið styrkist, lánin lækka, "gróðinn" vex. Snillingarnir halda reyndar að hér sé allt of mikil þensla og telja sig vera að slá á hana.

Ef horft er á tímabilið eftir 2001, þá hefur Seðlabankinn verið eins og hermaður á leið í stríð, sem eyðir öllum skotfærunum á leiðinni í stríðið, aðallega í að skjóta á vini sína í herfylkinu og skapa glundroða. Nú er vinurinn kominn á vígvöllinn og þá eru nánast öll skotfærin búinn og félaginn búinn að missa alla tiltrú.

Það er einfaldlega búið að gjöreyða efnahag þjóðarinnar í tómt svínarí og rugl undanfarin ár og framhaldið er eingöngu spurning um tímasetningar. Eitt fix í dag getur frestað vandanum í nokkrar vikur, en vandinn fer ekkert, þó margir trúi því eflaust. 

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 14:12

4 identicon

Síðan er staða almennings í landinu orðin verulega sérkennileg. Í raun eru fjölskyldurnar komnar í stöðu spákaupmannsins með eignir sínar og skuldir, án þess að hafa áttað sig á því. Heimilin í landinu hafa tekið stöðu með krónu og gegn erlendum myntum, meðan gengi krónunnar var hvað sterkast.

Það er ekki gott að hafa tekið stöðu með veikasta rusl gjaldmiðli heims og gegn þeim sterkustu.

Er hægt að setja heila þjóð í þessa stöðu? Allir í spákaupmennsku, jafnvel án þess að vita það.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 17:54

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þetta háir stýrivextir hreinlega fóðra verðbólguna frekar en hitt. Þeir valda td. hækkun yfirdráttarvaxta  og í atvinnurekstri veltur sá kostnaður veltur áfram í verðlagið eins og annar rekstrarkostnaður.

Baldur Fjölnisson, 25.3.2008 kl. 18:07

6 Smámynd: proletariat

þetta er hárrétt hjá þér Baldur.

Þetta er ein af ástæðunum sem valda því almennt hagfræði voodo virkar ekki fyrir ísland.

það er allt fjármagnað á vondum kjörum, aðgerð seðlabanka er ávísun á verðbólgu og frekara fall Krónunnar

proletariat, 25.3.2008 kl. 18:53

7 identicon

Til að byrja með þá getur ekkert eðlilegt hagkerfi búið við 13,75% stýrivexti. Allir peningar fara í umferð í formi lána til einstaklinga, fyrirtækja eða ríkissjóðs og þau bera vexti. Ef meðalvextir eru t.d. 15% þá verður hagvöxturinn að vera svipaður til þess að dæmið gangi upp. Slíkur hagvöxtur er ekki raunhæfur og eina sem gerist er að ákveðinn vandi safnast upp. Vaxtaokur er líka félagslegt óréttlæti vegna þess að bitnar mest á ungu fólki sem er að kaupa sér húsnæði í fyrsta skipti.

Háir vextir hafa heldur aldrei verið gott hagstjórnartæki á Íslandi. Hagkerfið er lítið og þeir sem selja vörur eða þjónustu geta verið nokkuð samstíga þegar þeir reikna vaxtakostnað inn í verðlagið. Þeir sem keppa við innflutning eru þó vissulega í vandræðum

Tekið af vald.org

Þetta verðbólgustig er farið að fara í mínar fínustu.  Ríkisstjórn þessa lands hefur gjörsamlega brugðist við að halda hér stöðugu verðlagi. En þar er grundvallar atriðið svo kaupmáttur allra haldist og eða aukist.  Það vantar úrræði frá fíkisstjórninni í samvinnu við seðlabankan.  Enginn eru úrræðin, áhugaleysi eða algjört getuleysi.

Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að bíða þetta afsér og huggun sem stenst ekki til lengdar hefur rúið þessa ríkisstjórn öllu trausti.......

Ég vil fá nýtt fólk á þing sem þorir að taka á málunum.......

gfs (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 23:02

8 identicon

Gleymdi.....

Háir vextir hafa heldur aldrei verið gott hagstjórnartæki á Íslandi. Hagkerfið er lítið og þeir sem selja vörur eða þjónustu geta verið nokkuð samstíga þegar þeir reikna vaxtakostnað inn í verðlagið. Þeir sem keppa við innflutning eru þó vissulega í vandræðum

Þannig að það er sama hvað seðlabankin gerir verðbólgan hækkar.....

Hvernig komumst við hingað???

Ríkisstjórnin ætti nú að stíga inní en ekki hverfa inní skel og segja bara að þetta reddist.....

svei og skömm

gfs (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 23:05

9 identicon

Ég sé fyrir mér uppþot og læti þegar fólk fer að horfast í augu við raunveruleikann: góðærið var aldrei neitt góðæri, skuldafylliríinu er lokið.

Fólk fer síðan af landinu frekar en standa í endalausu skuldabasli, við erum orðin það góðu vön og munum ekki sætta okkur við baslið sem framundan er.

Þarna er ég að spá svona 2-3 ár fram í tíman, þetta vindur upp á sig, vandamálin eru ekki byrjuð í raun.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 23:13

10 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Takk fyrir það allt.

OFF TOPIC,

Download Mp3 / Files from Google Mp3 Music Mp3 Attempt 2 Mp3 Attempt 3 Music Album/Artist Anime Episodes Anime Downloads Torrents Game Downloads Rapidshare/Mupload University Courses PDF Documents Ringtones Youtube Videos Streaming Movies Megaupload 100mb+ ---------------------

Download anything from mp3s to anime using the drop down box. Right click save as the link to save a file to your computer instead of streaming. Adding quotes around your search may help.

Baldur Fjölnisson, 25.3.2008 kl. 23:41

11 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Djöf. klúður.

Vonandi virkar þetta ...

MP3s From Google

Baldur Fjölnisson, 25.3.2008 kl. 23:44

13 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Við verðum að treysta á upplýsingar frá þér Baldur á þessum óvissutímum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 26.3.2008 kl. 02:37

14 Smámynd: haraldurhar

Baldur þú gleymdir >Zinbabe

haraldurhar, 27.3.2008 kl. 23:56

15 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Á þessum lista Economist eru bara tvö Afríkuríki, S-Afríka og Egyptaland.

Stýrivextir í Zimbabwe eru núna 1200% skv. vefsíðu seðlabankans þar í landi og verðbólgan rúmlega 100 þúsund prósent. http://www.rbz.co.zw/



Baldur Fjölnisson, 28.3.2008 kl. 08:27

16 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hmm, ég held að þeir breyti stýrivöxtunum á korters fresti þarna í Zimbabwe ... núna eru þeir 4000%,

Baldur Fjölnisson, 28.3.2008 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 115965

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband