Miðvikudagur, 04.02.09

Enn einn daginn afrekaði ég að dragast á fætur fyrir allar aldir og koma mér í vinnuna þar sem mér tókst sem fyrr að koma hinu og þessu í verk og auk þess að stunda venjulegan undirróður. Sendi póstlistanum bókina Why women should rule the world. Núna er ég á barnum að spila á sjálfvirka píanóið af mikilli list og einhverjir túristar eru að kinka kolli yfir þessum frábæra píanóleikara. Kannski ég fari að hætta og labbi á milli þeirra með hattinn.

Ég skal með ánægju hafa upp á peningunum fyrir 2% þóknun

Til þess þarf ég ákveðna aðstöðu, geymslupláss fyrir menn og sirka 100 lögreglumenn. Risavaxin íþróttahús borgarinnar mætti vel stúka niður í þessu skyni. Þegar menn sem gætu lúrað á upplýsingum um stórar fjárhæðir erlendis koma á minn fund eru þeir strax beðnir að upplýsa um allt sem ég vil vita og gangi það ekki eru þeir reyrðir niður á bekk, fá svartan poka á hausinn, næringu í æð og þetta ástand þeirra varir þangað til þeir verða samvinnuþýðir og skila peningunum eða drepast úr leiðindum. Ég get garanterað yður nú þegar 98% árangri þannig að það er ekki eftir neinu að bíða.

Global recession - where did all the money go?

The global financial pyramid scheme explained.

http://www.guardian.co.uk/business/dan-roberts-on-business-blog/interactive/2009/jan/29/financial-pyramid


Æskilegt að Jóhanna taki múhameðstrú

Hún yrði þá múslímskur kvenmaður og jafnframt samkynhneigð, sem vafalaust myndi tryggja að 50 þúsund flyttu snarlega úr landi - sem er akkúrat það sem við þurfum ! Þá væri hér næg atvinna fyrir þá sem eftir væru, húsnæði yrði svo til ókeypis, það myndi rýmkast um fyrir framtakssamt fólk til lands og sjávar. Og við myndum losna við versta afturhalds- og niðurrifsíhald landsins á einu bretti ! Eftir tíu ára setu Jóhönnu í forsætisráðherrastóli væri hér almennt fyrirmyndarrekstur við lágmarkskostnað í þetta 200-250 þús. manna samfélagi.

Djöf. vildi ég vera liðónýtt drasl sem siðlaust rusl réði til starfa og svo kostaði á endanum tugi milljóna að reka mig

Eitthvað kengbilað bílasaladrasl sem geðsjúklingar hefðu gert að ráðherrum myndi fullvissa landslýðinn um að ég og hann hefðu nauðgað honum í ósmurt í besta tilgangi. Efstu kúkarnir í þessum gjörspillta skítahaug virðast vera að drepast úr eigin skítafýlu þannig að þessi gjörspillta svikamylla virðist vera að eyða sjálfri sér sem er það eina af viti sem hún hefur komið upp með.

Skattgreiðendur eru núna með tvær gjaldþrota ruslveitur á bakinu

Ruslveita ríkisins hefur verið krónískt gjaldþrota alla valdatíð íhaldsins undir stjórn sérvalinna frjálshyggjuspekinga þess og lukkuriddara. Núverandi hæstráðandi þarna kom fyrir nokkrum árum skríðandi á kviðnum eins og hundur á fund Þorgerðar Katrínar og henni líkaði vel það sem hún sá og hann hefur enn ekki verið rekinn enda kostar áreiðanlega tugi milljóna að reka hann.

Núna er fallít þrotabú Árvakurs, ruslveitu Moggans, upp á náð og miskunn nýju ríkisbankanna komið og aðeins það hefur hindrað að félagið færi í gjaldþrotameðferð. Til að hægt væri að selja þetta fallít bú þyrftu téðir ríkisbankar í amk. meintri eigu skattgreiðenda að afskrifa amk. hluta skulda þrotabúsins sem skiljanlega myndi koma niður á téðum meintum eignum skattborgaranna. Hvers vegna skyldi ég sem skattborgari þurfa að borga með rekstri einhvers misheppnaðs ruslpósts? Ekki tók ég þátt í að velja einhverja misheppnaða hálfvita við stjórn ruslpóstsins og sem útrýmdu trúverðugleika hans og þar með rekstrargrundvelli. Þurfa ekki eigendur ruslveitunnar að axla ábyrgð á sínu? 


Stíf fundahöld í kringum hræ ríkisstjórnarinnar

Hún hefur verið sem afvelta rolla úti í skurði eiginlega allt frá því hún var login af stokkunum og endanlega orðið sjálfdauða á síðustu mánuðum. Núna er þetta nánast án stuðnings innanlands og til athlægis erlendis og það gengur ekki lengur og hún endist vart daginn og örugglega ekki vikuna. Íhaldið fer örugglega út og mynduð verður síðan minnihlutastjórn. Þetta er eini möguleikinn sem fyrir liggur.

Íhaldinu sparkað úr stjórninni og ekki seinna vænna

Minnihlutastjórn SF og VG tekur við og Framsókn ver hana. Þetta er skárra en ekki neitt og SF þarf að sjálfsögðu að skipta um alla ráðherra sína og eftir kosningar þarf síðan að framkvæma alvarlegar hreinsanir í stjórnkerfinu og svæla út mikið af ónýtu liði sem íhaldið hefur plantað þar til að feila síðustu 15-20 árin. Góðar stundir.

Bloggarinn Bjöggi eys úr skálum visku sinnar 5. sept. 2008, þremur vikum áður en hann þjóðnýtti Glitni

Ljóti helv. fábjáninn. Ekki er kyn þó keraldið leki þegar einhverjir ruglustrumpar hleypa þessu alla leið í ráðherraembætti. Hvernig skyldi restin af þessu ráðherradóti koma út við gagngera skoðun. En þetta skrifaði sem sagt Bjöggi litli hinn 5. sept. sl.:

“Þegar KB banki opnaði útibú í Lúxemborg fyrir nokkrum árum óraði líklega engan fyrir því hve vel íslensku fjármálafyrirtækjunum ætti eftir að ganga við að hasla sér völl á erlendri grundu. Ævintýralega vel er kannski rétta orðið yfir það.

Kjarkur, þor og góð þekking íslensku útrásarmannanna skilaði meiri árangri hraðar við fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli á alþjóðavísu. Ekki síst þegar lagt er saman við aðra útrás Íslendinga erlendis í verslun, iðnaði og þjónustu ýmiskonar.

Auðvitað skortir ekki úrtölur eða þá sem telja sig knúna til að tala útrás og fjárfestingarævintýri Íslendinga erlendis niður. Þannig eru nú hlutirnir einu sinni og því er það mikilvægt nú þegar hægir tímabundið á útrásinni vegna þrenginga á erlendum mörkuðum að halda frábærum árangri þessara flaggskipa atvinnulífsins okkar ríkulega til haga. Þetta eru okkar voldugustu fyrirtæki og nokkrar af helstu undirstöðum efnahagskerfis okkar til lengri tíma.

Í árslok 2006 má ætla að hlutdeild fjármálafyrirtækja hafi numið um 10% af landsframleiðslu og verðmæti útflutnings þekkingar og þjónustu um 60 milljörðum. Í fyrra komu 52% af tekjum viðskiptabankanna erlendis frá og þótt erlendar tekjur vátryggingafélaga séu enn ekki svipur hjá sjón miðað við viðskiptabankanna stefnir þróunin þar í sömu átt. Þessar staðreyndir sýna svo ekki verður um villst að útrás fjármálageirans hefur orðið afgerandi þýðingu í okkar efnahagslífi.

Íslensku bankarnir hafa sums staðar sætt nokkurri gagnrýni undanfarið erlendis. Sérstaklega fyrir að vera ekki nógu burðugir og um of háðir skammtímafjármögnun. Um forsendur gagnrýninnar sem skapaðist vorið 2006 hefur verið fjallað um rækilega, meðal annars af Fredirik Mishkin og Tryggva Þór Herbertssyni. Niðurstaðan er sú að gagnrýnin var að verulegu leiti tilhæfulaus. Hinsvegar var ljóst að bankarnir þyrftu að fjármagna sig betur og til lengri tíma og að koma þyrfti betur á framfæri upplýsingum um rekstur þeirra.”

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband