Íhaldið mun áfram neita að hrófla við geð- og förgunarúrræðum sínum og því mun stjórnin sjálfsagt springa í næstu viku

Formaður stjórnar Seðlabanka Íslands er Halldór Blöndal og formaður bankastjórnar er Davíð Oddsson. Þessir menn duttu ekki bara random úr himninum í stólana, nei einhverjir vitleysingar ákváðu að þetta væru einmitt réttu mennirnir þarna. Og nú erum við hér og þjóðarbúið farið á hausinn og búið að stela landinu og flytja það út - undir öruggri stjórn þessarra jólasveina og annarra í stíl við þá út um allt kerfið. Og ekki er enn búið að reka þá enda finna vitleysingar af þessu tagi aldrei neina minnstu sök hjá sjálfum sér og sama sinnis eru þeir sem hafa komið þeim í stólana og bakkað þá upp. Þetta er augljóslega skipulögð skemmdarstarfsemi og þarf að fara í gagngera rannsókn og hinir seku á endanum að fá vistun við hæfi og fyrst og fremst í þágu öryggishagsmuna almennings.

Þetta er mykjuhaugur upp á fimmtán tonn. Það breytir engu að moka nokkrum skóflustungum til í honum

Það þarf einfaldlega að fjarlægja allan hauginn. Sama maskínan og setti verra en handónýtt lið í að vera varðhundar fyrir fjármálaveldi sem hefur stolið landinu mun bara finna einhverja aðra varðhunda. Það var nauðsynlegt að reka þennan Björgvin og þessi málamyndagögn í FME og var nauðsynlegt fyrir ári síðan amk. og vissulega er betra seint en aldrei en eftir situr förgunar- og geðdeild íhaldsins við Arnarhól, raunveruleg yfirríkisstjórn landsins, og ekkert breytist í raun fyrr en báðar þessar ríkisstjórnir hafa verið fjarlægðar sem og varðhundar sem þær hafa raðað út um allt kerfið. Það væri góð byrjun að sparka nokkrum hundruðum úr valdakerfinu strax en hugsanlega þurfa þúsundir að fjúka.

Komandi gjaldþrot Bretlands: Breski pesóinn í frjálsu falli

Breski pesóinn hefur gjörsamlega hrunið í seinni tíð eftir að ljóst varð að breska bankakerfið væri algjörlega gjaldþrota og vita fallít ríkissjóður væri ófær um að "bjarga" því. Pesóinn er í sögulegum botni gagnvart jeni og hefur ekki verið lægri gegn dollar í sjö ár. Lækkun á lánshæfimati breska ríkisins verður vart lengi umflúin úr þessu og því mun fylgja skriða á endurskoðun annarra væntanlegra risagjaldþrota. Eftir að ávaxtalýðveldi Austur-Evrópu rúlla á hausinn mun Ítalía fylgja á eftir og Bretland, þetta er eiginlega bara spurning um röðina. Bandaríkin munu síðan fylgja fast á eftir.

 


Gósentíð fyrir væludúkkur íhaldsins og ýmsa aðra helstu kjölturakka moggabloggsins

Þetta toppar núna jafnvel sjálft sig í tilfinningakláminu. Það mætti halda að fólk hefði ekki veikst áður hér á hólmanum, slík er tilætlunarsemi og og frekjugangur þessa liðs. Óhæfur maður sem aldrei hefur haft minnstu burði í starf forsætisráðherra er núna veikur og það er náttúrlega slæmt fyrir hann og hans fólk en tjónið af að hafa verra en gagnlausan mann fyrir gjörsamlega handónýtri stjórn minnkar þá væntanlega. En auðvitað kemur innihaldslaus froðusnakkur í staðinn fyrir annan hjá íhaldinu enda ekki annað í boði á þeim bænum eins og hver maður sér. Amen og kúmen.

Fylgi ríkisstjórnarinnar stefnir óðfluga í núll komma núll

Fréttablaðið, 24. jan. 2009 08:00

Fáir styðja núverandi stjórn

mynd

Núverandi ríkisstjórn er mjög óvinsæl, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Bæði er það að ríkisstjórnarflokkarnir tveir, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking, eru að tapa fylgi hvort sem litið er til síðustu könnunar eða síðustu alþingiskosninga. Hins vegar segjast einungis 20,3 prósent styðja núverandi ríkisstjórn, en stuðningur við ríkisstjórnina var 71,9 prósent í febrúar fyrir tæpu ári.



Samfylking hrynur

Eins og sjá má á grafinu hér fyrir ofan hrynur fylgi Samfylkingar frá síðustu könnun blaðsins, sem var þann 22. nóvember á síðasta ári. Þá sögðust 33,6 prósent kjósa flokkinn, en fylgið mælist nú 19,2 prósent og er samkvæmt því minni en bæði Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkur. Fylgi flokksins hefur ekki mælst jafnlítið í könnunum Fréttablaðsins síðan í mars 2007. Kosningar voru tveimur mánuðum síðar.
Væru þetta niðurstöður kosninga myndi flokkurinn fá þrettán þingmenn kosna, fimm færri en í síðustu alþingiskosningum.
Mesta fylgistapið, frá síðustu könnun, er meðal kvenna, og hefur önnur hver kona yfirgefið flokkinn frá síðustu könnun. Þá hefur nær annar hver kjósandi á landsbyggðinni fært stuðning sinn annað.



Framsóknarflokkur rís

Á sama tíma og Samfylking sígur, rís Framsóknarflokkurinn undir stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Í síðustu könnun blaðsins var fylgi flokksins einungis 6,3 prósent en rís nú upp í 16,8 prósent og hefur ekki verið meira í könnunum blaðsins síðan í okóber 2003. Einn og hálfur kjósandi, fyrir hvern þann sem fyrir var hefur bæst við hópinn frá því í lok nóvember. Samkvæmt þessu fengi flokkurinn tólf þingmenn en sjö þingmenn sitja nú á þingi fyrir hönd flokksins.
Framsóknarflokkurinn sækir aðallega fram í þeim hópum sem Samfylkingin tapar fylgi í; meðal kvenna og íbúa á landsbyggðinni.
Þá eykst stuðningurinn á landsbyggðinni úr 3,5 prósent í 23,6 prósent. Aukingin á höfuðborgarsvæðinu er lítilsháttar.



Vinstri grænir stærstir

32,6 prósent segjast nú myndu kjósa Vinstri græn og fengi flokkurinn 23 þingmenn. Vinstri græn yrðu því stærsti flokkurinn á þingi með átta þingmönnum fleiri en Sjálfstæðsflokkurinn. Þingmenn Vinstri grænna eru nú níu.
Í síðustu könnun blaðsins sögðust 27,8 prósent myndu kjósa Vinstri græn og hefur flokkurinn því bætt við sig rúmlega þremur prósentustigum síðan þá. Mestu bætir flokkurinn við sig á höfuðborgarsvæðinu, tæplega níu prósentustigum.



Tíu færri sjálfstæðisþingmenn

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aldrei verið minna í könnunum Fréttablaðsins en nú. Flokkurinn hefur hægt og sígandi tapað fylgi frá í febrúar á síðasta ári, án þess að ná að rétta sig af.
22,1 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn og fengi flokkurinn 15 þingmenn eða tíu þingmönnum færri kjörna en eru nú, væru þetta niðurstöður kosninga. Í síðustu könnun sögðust 24,8 prósent kjósa flokkinn, þannig að munurinn er ekki mikill. Helst er það á höfuðborgarsvæðinu sem sjást einhverjar sveiflur og stuðningur hefur dregist saman um tæp fimm prósentustig, úr 26 í 21 prósent.



Frjálslyndir standa í stað og aðrir

3,7 segjast nú myndu kjósa Frjálslynda flokkinn og fengi hann því ekki þingmann kjörinn samkvæmt 5,0 prósenta jöfnunarmannareglu. í nóvember sögðust 4,3 prósent myndu kjósa flokkinn. Flugið sem Frjálslyndir náðu um mitt síðasta ár virðist því lokið, í bili að minnsta kosti.
5,5 segjast myndu kjósa einhvern annan en þá flokka sem nú eru á alþingi. Flestir sögðust vilja kjósa eitthvað nýtt framboð eða einstaklingskjör. Þrátt fyrir að „annað" nái yfir fimm prósenta markið, eru kjósendur ekki sammála um hverjir þessir „aðrir" eru og því ekki hægt að úthluta á þá þingmenn.



Fáir taka afstöðu

Mjög fáir tóku afstöðu í könnuninni, eða einungis 47,5 prósent af þeim 800 sem tóku þátt. Ef litið er á allan hópinn sögðust 12,3 prósent að þeir myndu ekki kjósa eða skila auðu. 36,4 prósent voru óákveðin og 3,9 prósent neituðu að svara spurningunni.



Fáir stuðningsmenn eftir

Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna nú 41,3 prósent og ríkisstjórnarflokkarnir myndu því fá 28 þingmenn sem dugar ekkifyrir þingmeirihluta. Flokkarnir hafa nú 43 þingmenn af 63.
Lítið fylgi stjórnarflokkanna endurspeglast í litlum stuðningi við ríkisstjórnina. Einungis 20,3 prósent styðja nú ríkisstjórnina, en stuðningurinn mældist 31,6 prósent í nóvember. Hefur stuðningurinn dalað verulega frá því í febrúar 2008 þegar 71,9 prósent studdu stjórnina. Lítill munur er á stuðningi við stjórnina eftir búsetu eða kyni. Þó er aðeins meiri andstaða við ríkisstjórn meðal kvenna og á landsbyggðinni.
Sjálfstæðismenn skera sig úr og styður mikill meirihluti þeirra ríkisstjórnina, eða 81,8 prósent þeirra. Einungis 28,3 prósent kjósenda Samfylkingarinnar styðja hana hins vegar. Allir kjósendur Vinstri grænna eru stjórninni mótfallnir og 93,2 prósent kjósenda Framsóknarflokksins.



Vilja þjóðstjórn

Flestir af þeim sem afstöðu tóku til þess hvernig ríkisstjórn væri æskileg fram að kosningum sögðust vilja þjóðstjórn, eða 45,1 prósent. Stuðningur við þjóðstjórn er mestur meðal þeirra sem ekki gefa upp hvaða flokk þeir myndu kjósa, eða 55,2 prósent.
Næstflestir vilja áframhaldandi stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar eða 25,3 prósent. Það eru því fleiri sem vilja áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf en styðja núverandi ríkisstjórn.
18,2 prósent segjast vilja ríkisstjórn Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna, og eru þá teknir saman þeir sem vildu ýmist ríkisstjórn þessara þriggja flokka eða ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, enda myndi síðarnefnda ríkisstjórnin ekki halda velli nema að vera varin af Framsóknarflokknum.
Nokkur munur er á afstöðu eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Rúm 29 prósent framsóknarfólks vill ríkisstjórn Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna en 40 prósent vilja þjóðstjórn. Tæp 66 prósent sjálfstæðismanna vilja áframhaldandi samstarf núverandi stjórnar, sem er minni stuðningur en við núverandi stjórn. Kjósendur Samfylkingar eru skiptir á milli núverandi samstarfs, þjóðstjórnar eða ríkisstjórnar Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks. Vinstri grænir vilja þjóðstjórn eða samstarf Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknar. Þeir sem ekki gefa upp stuðning vilja flestir þjóðstjórn eða áframhaldandi ríkisstjórn.
Hringt var í 800 manns fimmtudaginn 22. janúar og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu. Þá hafði Geir H. Haarde ekki enn lýst því yfir að hann vildi boða til kosninga í byrjun maí og að hann myndi ekki bjóða sig aftur fram til formanns Sjálfstæðisflokksins vegna veikinda. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga nú? og tóku 47,5 prósent afstöðu til spurningarinnar. Þá var spurt; Styður þú ríkisstjórnina og tóku 92,4 prósent afstöðu til spurningarinnar. Einnig var spurt; Hvaða ríkisstjórn vilt þú fram að næstu kosningum? 77,0 prósent tóku afstöðu til þeirrar spurningar.

Nauðsynlegt að slíta ríkisstjórninni þegar í stað

Það er ekkert annað en ömurlega lélegur brandari að láta Þorgerði Katrínu bulla landið enn frekar niður í svaðið innan lands og utan en þegar er orðið. Hún ætti allra helst að fá sér vonn vei tikket til Kína með handboltastrákunum sínum. Þar er hún best geymd. Restin af þingflokknum gæti farið í uppfyllingu í Timbuktu. Það er ekki hægt að bjóða landslýðnum upp á þennan ófögnuð lengur. Hingað og ekki lengra.

Erlendir húsbændur íhaldsins leggja ofuráherslu á að leppar þeirra lafi áfram við völd

Þegar mótmælendur hér ná því að flæma þennan ófögnuð frá völdum mun það brátt smitast til annarra ávaxtalýðvelda sem eins og þetta eru á leið til fjandans eftir bandarísk-breskum efnahagsmanúelum. Eftir að Úkraína, Eystrasaltsríkin og fleiri fyrrum sovétlýðveldi fara opinberlega á hausinn munu Rússar hirða draslið aftur og í framhaldinu sjálfsagt renna saman við Evrópu í orku- og efnahagsbandalagi - nokkuð sem engan veginn hentar hagsmunum og áætlunum bandar. heimsveldasinna. Með öðrum orðum; jaðarsvæði bandar. heimsveldisins eru að molna utan af því sem klassískur þáttur í hnignum heimsvelda og hefur verið síðustu árþúsundin og verður enn.

Hrun íhaldsins hér og smáíhalds annarra flokka sem það notar sem aftaníossa sína mun hafa mikið fordæmisgildi og verða smá þúfa sem getur velt mjög stóru hlassi og því afar mikilvægt erlendum eigendum íhaldsins að fresta þessu sem allra mest. En fallið verður bara því stærra sem það dregst lengur.


Cubicle Warfare: How To Make A Desktop Viking Catapult

capapult.jpg

We all have them. Coworkers who drive us crazy. What better way to get back at them, then sit in your cube, and ominously build a weapon of mass (cubicle) destruction?

Make your neighbor suffer your wrath using this handy how-to on making a desktop viking catapult. Launch paperclips, thumbtacks, pencils, whatever. Revenge and justice will be yours. Inspired by Boy Scout lashings (knots, not actual beatings, geez) and the books of William Gurstelle.

Needless to say, I’ll be hard at work on one of these during my lunch breaks, planning an all out attack on a certain someone from Slashfood.

How To Make A Desktop Viking Catapult via Instructables

 

----------------------------------------

Athugið: Alls ekki smíða þetta í stærð sem hentar til að kasta 1-2 kílóa hnullungum tugi metra. 


Hundurinn þinn er miklu öruggari heimild um stöðu bankanna en Geir Haarde

Þú þarft að vera haldinn fjárhagslegri tortímingarhvöt og sjúklegri trúgirni til að taka minnsta mark á manninum. Hann er aðeins nothæfur sem gagnvísir og hefur raunar virkað 100% sem slíkur síðustu misserin. Þegar hann núna bullar eitthvað út í loftið um að bankarnir standi vel eru það skýr skilaboð um fólki beri að fjarlægja fjármuni sína úr þeim, á því er ekki minnsti vafi.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband