Ýmislegt er greinilega í bígerð

Ég fékk tölvupóst (óumbeðinn) frá einhverjum sem ég þekki hvorki haus né sporð á:

"""Var beðinn um að koma þessu áfram, þetta er eitthvað sem er verið að auglýsa á live2cruize.com.

það er verið að plana mætmæli á morgun ef nægur fjöldi fólks fæst,,
ekki á bílunum okkar svo að löggan geti ekki hirt þá
hugmyndin er að fara labbandi skilja bílana eftir löglega einhverstaðar í stæði og standa fjöldi fólks á gatnamótunum kringlumýrabraut miklubraut ef við erum þarna nógu mikið af fólki getur löggan ekki gert mikið kannski handtekið nokkra en það er séns sem ég er allavega til í að taka, en þið?

mætum nógu andskoti mörg bara og hittumst klukkan 2 á planinu hjá húsi verslunarinnar"""

Góðar stundir, Baldur F.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæri bloggvinur: Takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar

Sigurður Þórðarson, 24.4.2008 kl. 14:48

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Takk ævinlega.

Með kveðju,

Baldur F.

Baldur Fjölnisson, 24.4.2008 kl. 15:44

3 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Gleðilegt sumar!

Margrét St Hafsteinsdóttir, 24.4.2008 kl. 19:37

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Takk fyrir það og sömuleiðis.

Það gjósa upp ýmis hættumerki þessa dagana en við stjórn eru tréhestar og risaeðlur sem eru á stöðugum ferðalögum í ofboði grenjandi utan í erlenda húsbændur sína og/eða að bjarga heiminum. Þegar þetta lið neyðist til að tjá sig hér heima skín af því valdhroki að ekki sé minnst á riðandi taugaveiklun og erfiðan geðbúskap sjálfsagt ekki síst vegna lyfjanotkunar, langsoðins farsímaheila og endalausra kraftaverkakúra og afeitrunar. Getur ekki einhver klár hakkari náð í lyfjaskrá þessa liðs síðustu 20 árin og kannski eitthvað fleira áhugavert. Þannig mætti etv. losna við það allt úr stjórnmálum á einu bretti.

En það er greinilega stutt í múgæsinguna hér í þessu dásamlega fyrirmyndarlandi sem einhverjir gæjar á prósaki telja hið besta í heimi á öllum sviðum en samt eru nú umbúðirnar eiginlega flottari en innihaldið. Það kraumar eitthvað undir og mér líst ekki á það. Og eitt er víst; risaeðlur og nytsamir sakleysingjar sem hafa sína hugmyndafræði, viðhorf og vinnubrögð frá bresk/bandarískum fasistum munu aldrei hafa burði í annað en að magna ólguna og gera illt verra.

Baldur Fjölnisson, 24.4.2008 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 115963

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband