Lögreglan stappar stálinu í mótmælabílstjóra og aflar þeim samúðar

Frétt af mbl.is

  Bílstjórar: „Við höldum áfram"

Innlent | mbl.is | 9.4.2008 | 9:54
Sturla Jónsson gerir grín að loknum yfirheyrslum... „Þeir sögðu að ég væri stórhættulegur morðingi en ég svaraði engu því ég hef ekki gert nokkurn skapaðan hlut af mér," sagði Sturla Jónsson talsmaður atvinnubílstjóra við fréttamenn eftir yfirheyrslur hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins fyrir stundu.
Lesa meira
--------------------------------------------------------------------------------------------------
Ekki það að ég sé sérstaklega á móti þessum mótmælum þeirra - en mér finnst þó ekki nein ástæða til þess að lögreglan sé beinlínis að hlaða undir þá og afla þeim samúðar með einhverjum heimskulegum athugasemdum. En eftir höfðinu dansa víst limirnir og fiskur mun úldna fyrst frá haus og síðan aftur úr og einnig mun vera beint samband milli orsakar og afleiðingar. Ergo; Björn Bjarna og Hvítasunnusöfnuðurinn ná áreiðanlega á endanum að gjöreyða trúverðugleika lögreglunnar eins og sínum eigin.

mbl.is Bílstjórar: „Við höldum áfram"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yfirvöld kunna ekki grunnsálfræði, það er alveg á tæru

DoctorE (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 14:18

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hann kemur þarna inn á ákveðinn hátt og gæti verið umfangsmeiri við Hverfisgötuna en margan grunar.

Nú, blessaður dómsmálaráðherrann hefur látið hafa eftir sér opinberlega að hann sjái ekkert athugavert við að stjórnmálamenn hafi samráð við "æðri máttarvöld" sem hann kallar svo, einhverja ósýnilega geimgaldrakalla. Síðan náttúrlega safnast að honum sálufélagar og aðrir súperkrissar sem líka eru uppteknir af röddum í eigin haus og svo framvegis. Ég man ekki betur en eitthvað jesúfríkið hafi viljað hafa bænastund með misindismönnum í miðbænum og afglæpa þá þannig.

Baldur Fjölnisson, 9.4.2008 kl. 14:35

3 identicon

Jú Geir Jón löggukall birtist í fullum lögguskrúða á Omega og sagðist geta leyst málin með trúboðum, gaurinn yrði rekinn í öðrum löndum en íslandi.. kannski líka USA

DoctorE (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 15:37

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Doktor, prófaðu að gúgla guð site:bjorn.is

  

Baldur Fjölnisson, 9.4.2008 kl. 15:47

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Fyrir þá sem ekki þekkja til er [site] afar öflug og hagnýt skipun í google.

Segjum sem svo td. að þig langi einhverra hluta til að skoða myndir á vefsvæði moggans.

Þá getur þú keyrt upp google á venjulegan hátt, klikkað síðan á myndir, sett í viðeigandi reit site:mbl

og þá færðu alla súpuna

http://images.google.is/images?gbv=2&hl=is&q=site%3Ambl.is&btnG=Leita+a%C3%B0+myndum

Góða skemmtun.

Baldur Fjölnisson, 9.4.2008 kl. 17:10

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

P.S. Skyldulesning ...

55 ways to have fun with google

Buy, download, share

The book contains over 220 pages and is available to buy Amazon for $19.66.

You can also download the full book as PDF (or Word)... it’s free to share & remix & do fun stuff with.

http://www.55fun.com/

Baldur Fjölnisson, 9.4.2008 kl. 17:15

7 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Afsakið v/innleggs nr. 6 ... á að vera mbl.is og strengurinn er miðaður við það ...

Baldur Fjölnisson, 9.4.2008 kl. 17:17

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hvítasunnusöfnuðurinn er ekki umfangsmeiri í Hverfisgötunni en svo að Samhjálp hrökklaðist þaðan, því miður, vegna þess að þar er gott starf á ferð.

Geir Jón er Geir Jón. Segi ekki meir en að hann er góður einfaldur karl. 

Theódór Norðkvist, 10.4.2008 kl. 01:46

9 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Point taken ... kveðja, Baldur F.

Baldur Fjölnisson, 10.4.2008 kl. 10:15

10 identicon

hahaha það mætti halda að bb sé ofurtrúarruglukollur :)

DoctorE (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 10:22

11 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hann minnist aldrei á helvíti nema í óeiginlegri merkingu hvað þá djöfulinn þannig að þetta trúarmal í honum er sennilega í mesta lagi hlandvolgt. Þetta er sjálfsagt mest pólitík, atkvæðaspursmál, blokkir í prófkjörum osfrv.

Baldur Fjölnisson, 10.4.2008 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband