Kristnin: Nígeríusvindl allra tíma

Þetta er stórkostlegasta fjárplógsstarfsemi í sögu mannkynsins og þessi guð sem nígeríusvindlararnir prómótera fær aldrei nóg af peningum og hér á landi erum við með milljarða batterí á hans vegum og sjónvarpsstöð sem eilíflega betlar peninga. Söluvaran er ósýnilegur og óskýranlegur kall í himninum og skv. sölubæklingi sem fulltrúar hans á jörðinni hafa verið að breyta og endurskoða öldum saman er jörðin flöt og hvílir á risavöxnum stöplum og þeir sem ekki trúa því munu kveljast í helvíti til eilífðarnóns. Svo trúið og fyrir alla muni borgið. Borga, borga, borga þannig hefur það gengið síðan þetta nígeríusvindl var fundið upp.

Mér finnst að lögregla og ríkissaksóknari þurfi að taka þetta svindl til rannsóknar og ekki seinna vænna en sennilega hafa jesúfrík hjá hinu opinbera ráðið hvítasunnusöfnuðinn til starfa þar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Það er búið að reyta peninga af auðtrúa lýðnum og stjórna með þessari sýru öldum saman, maður er orðinn nánast úrkula vonar að flett verði ofan af þessu í eitt skipti fyrir öll...nógu mikið höfum við arðrænd af bankakapitalistum og öðrum snýkjudýrum mannkyns og þurfum síst á því að halda að vera plokkuð enn frekar í nafni lygasögu,sérhannaðar til að afvegleiða fólk og stjórna. Af hverju er ég að borga kaup þeirra sem prédika þetta bull sem heilagann og óvéfengjanlegann sannleik og vaða uppi allstaðar í þjóðfélaginu.

Georg P Sveinbjörnsson, 1.12.2007 kl. 19:23

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ungir menn þurfa að þora að hafa skoðanir og tala fyrir þeim. Þetta snýst alltaf um framtíðina, sem þeir koma til með að bera ábyrgð á. Hver annar á það að vera. Eiga ekki þeir sem eru að vaxa úr grasi að hafa framtíðarsýn? Hverjir aðrir eiga að jarða gamlar og ómögulegar mýtur? Þetta snýst alltaf um að vera á undan kúrfunni. Gangi ykkur sem allra best.

Baldur Fjölnisson, 1.12.2007 kl. 23:55

3 identicon

Þegar búið verður að jarða þessi trúarbrögð verða fundin upp ný. Ég er ekki frá því að kynjafasisminn sé næstu trúarbrögð. Þar er beitt öllum gömlu brellunum: síendurtekning lyginnar, útskúfun (á Agli), setja ruglið upp sem "fræði" o.s.frv.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 2.12.2007 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 115973

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband