Athyglisbrestur er vaxandi vandamál vegna þess hversu vandamálafræðingar eru klárir í að greina hann

Las ég í einhverjum auglýsingasnepli um daginn. Ég skal ekki segja; auðvitað vill enginn leggja niður eigið starf, það er bara mannlegt, auðvitað búa vandamálfræðingar til vandamál til að tryggja sína afkomu, auðvitað skilar skólakerfið af sér treg- og ólæsu fólki sem síðan endar að sjálfsögðu í menntamálaráðuneytinu við að búa til enn nýjar kennsluaðferðir til að rugla bæði kennara og nemendur í ríminu og svo ræður þetta lið skólameistara og rífst síðan endalaust við þá um keisarans skegg hvernig eigi að telja nemendur í skólum og svo framvegis. Þetta er ótrúleg steypa. Hvernig komst hvítasunnusöfnuðurinn í menntamálaráðuneytið? Hvernig komst hann í lögregluna? Datt hann bara af tilviljun niður í þessi batterí?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Kerfið vill fyrst og fremst status kvó. Það er vegna þess að það er byggt upp af fólki sem fyrst og fremst vill tryggja sína afkomu og sitt starf. Það er bara mannlegt. Hins vegar erum við stödd í tröllvaxinni tæknibylgju. Hlutirnir breytast ógnarhratt og miklu hraðar en nokkur réttlæting fyrir störfum fólks sem myndar kerfið. Við erum núna að mennta fólk sem á að fara á eftirlaun um miðja öldina en við höfum ekki hugmynd um hvernig heimurinn mun líta út eftir fimm ár eða hvaða störf verða þá ráðandi ! Skólakerfið sjálft er í raun löngu úrelt þar sem þegar er mögulegt að mennta fólk í gegnum tölvur og bestu prófessorar heimsins geta séð um það í gegnum eins konar sýndarveruleika. Líklega verður mögulegt eftir 5-10 ár að planta örgjörva í nemendur með nauðsynlegri menntun eða sprauta því í þá, þetta verður enn augljósara eftir segjum 2-3 ár og ekki hægt að komast hjá því að ræða það. Hvað segja meðlimir í pólitísku rétttrúnaðarkirkjunni um þetta?

Baldur Fjölnisson, 20.11.2007 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 116008

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband