Guð og strumparnir

Björn Bjarna bullar ...

Björn Bjarnason: Lýðveldið og guðleg forsjón. Þegar ég hugsa til ræðumannanna, sem stóðu á Lögbergi fyrir 60 árum og lofuðu gæsku Guðs við íslensku þjóðina, held ég að hvorki þeim né nokkrum áheyrenda þeirra, hefði dottið í hug, að það yrði hugsanlega notað til gagnrýni á þá, að þeir vísuðu til handleiðslu Guðs almáttugs. Í apríl síðastliðnum ræddi ég gildi bænarinnar á prestastefnu og varð það tilefni greinar í Morgunblaðinu, þar sem höfundur sagði meðal annars: „Ég vil setja stórt spurningarmerki við dómgreind þeirra sem telja sig þess umkomna að halda því fram að þeir hafi fengið guðlega leiðsögn. Er ekki mannkynssagan full af ráðamönnum þjóða og kirkna sem farið hafa hamförum í sínu sambandi við óútskýranlegar verur?“ Með öðrum orðum, góðir áheyrendur, nú á dögum, þegar stjórnmálamenn leyfa sér að ræða gildi bænarinnar og lýsa trausti sínu á hina guðlegu forsjón eru þeir ávíttir fyrir að telja sig í samandi við „óútskýranlegar verur.“ Greinarhöfundur vill, að skynsemi, rökhyggja og mat á öllum aðstæðum ráði, þegar stjórnmálamenn eða aðrir taka ákvarðanir. Ég er sammála því. En ég spyr: Hver verður verri af því, að sækja styrk til þess, sem fullvissar okkur um, að hver sá öðlist, sem biður, sá finni, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, muni upp lokið verða. Náð og blessun eru góðir förunautar og bæn um leiðsögn til þess, sem hefur öll ráð í hendi sér, spillir ekki neinni ákvörðun. ... Megi góður Guð halda verndarhendi sinni áfram yfir Íslandi og Íslendingum!

2004.

http://www.bjorn.is/greinar/2004/06/17/nr/2798


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Afsakið, þarna átti að standa Guðfinna og stumparnir.

Baldur Fjölnisson, 15.10.2007 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 116008

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband