Hóruræðið á Íslandi

Mér finnst þessi nýi þjóðsöngur af Facebook lýsa afar vel því sem ég hef sl. ár verið að gagnrýna varðandi hóruræði fjórskipta einflokksins.

Ísland er stjórnlaust, því enginn því stjórnar,
Ísland er fleki af dýrustu gerð.
Ísland er landið sem Flokkurinn fórnar,
Ísland á reki í sjónum þú sérð.

Ísland í forsetans orðanna skrúð,
Ísland sem bankana auðmönnum gaf,
Ísland sem sonanna afrekum trúði,
Ísland er land sem á verðinum svaf.

Íslensk er þjóðin sem allt fyrir greiðir,
Íslensk er krónan sem fellur hvern dag,
Íslensk er höndin sem afvegaleiðir,
Íslensk er trúin: "það kemst allt í lag".

Íslensk er bjartsýna alheimskuvissanum,
Íslenskan sigur í sérhverri þraut,
Íslensk er góðæris átveisluhryssan,
sem íslenskan lepur nú kreppunnar graut.

Ísland er landið sem öllu vill gleyma,
sem Ísland á annarra hlut hefur gert.
Íslenska þjóð, þér var ætlað að geyma,
hið íslenska nafn sem þú hefur nú svert.

Íslandi stýra nú altómir sjóðir,
Ísland nú gengur við betlandi staf.
Ísland sækir nú alls konar þjóðir,
Ísland er sokkið í skuldanna haf.

Höfundur ókunnur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Það er (yfirfærð) villa í 4. erindi, þar sem á að standa alheimskuvissan, en ekki alheimskuvissanum. Og í síðasta erindinu ætti að standa sækja, en ekki sækir.

Að öðru leyti er þetta ágæt vísa.

Vendetta, 24.9.2010 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 116008

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband