Eitthvað stórt í loftinu 22. ágúst ?

Það á víst að vera eitthvað í líkingu við stórt terrorhollywoodsjó eða annan stóratburður, etv. opinberun um risagjaldþrot einhvers keðjubréfaskíms. Kannski verður endurbættri og stökkbreyttri flensuveiru opinberlega hleypt af stokkunum. Ég var í sept. sl. að blogga um væntanlega stóropinberun sem átti að birtast í kringum 7. okt., og hafði það frá sömu aðilum og núna eru að boða eitthvað stórt um helgina - og viti menn Ísland fór einmitt á hausinn 7. okt. og hefur mikið gengið á síðan við að forða og fresta því að gjaldþrot okkar verði fordæmi annarra miklu stærri og óhjákvæmilegra þjóðagjaldþrota og stórtækar lygamaskínur verið við það að bræða úr sér í því skyni bæði hér og þar. Þannig að það er gríðarlega mikið undir og má búast við öllu og varla góðu en hvort það skellur á um helgina eða síðar verður bara að koma í ljós. Amen og kúmen.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: eysi

Er þessi dagsetning eithvað gisk ?

eysi, 17.8.2009 kl. 20:41

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þetta er fundið út með víðtækum bottum sem þefa upp hvað er í gangi á netinu og síðan reynt að meta niðurstöðurnar. Það lekur allt út en samt geta upplýsingarnar verið óljósar og erfitt að henda reiður á því. Samt er það skjalfest staðreynd að ég var að blogga sl. sept. um eitthvað stórt sem gæti tengst sirka 7. október og Ísland fór síðan opinberlega á hausinn þann dag.

Baldur Fjölnisson, 17.8.2009 kl. 20:48

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Að vísu hélt ég að þetta yrði einhvers konar terrorhollywoodsjó en terrorinn var fjárhagslegs eðlis ...

22.9.2008 | 14:23

Miklar líkur á einhvers konar terrorhollywoodsjói næsta mánuðinn

Mér skilst að eitthvað mjög stórt geti skollið á í kringum 7. okt. og jafnvel verði borinn fram forréttur að því um 27. þessa mánaðar. Þetta stóra á víst að vera einhvers konar terrorleiksýning eða hernaðarbrölt, ekki nákvæmlega ljóst hvers eðlis það á að vera.

Alþjóðlegt bankakerfi er algjörlega fallít og hefur verið að veslast smám saman upp síðustu 1-2 áratugina og síðasta árið hafa hræringar tengdar dauðastríði þess orðið sífellt brjálæðislegri eins og menn hafa séð. Þetta er orðin algjör örvænting í æðstu stöðum og mikið sem liggur við að draga athygli almennings frá þessum fjárhagslega ruglanda sem flestir sjá að hefur verið sviðsettur. Hinir ábyrgu, stjórnmálamenn og eigendur þeirra og kostendur í fjármálaheiminum, munu að sjálfsögðu reyna allt til að sleppa við að lenda á bak við lás og slá ásamt fylgifiskum sínum.

Baldur Fjölnisson, 17.8.2009 kl. 20:53

4 Smámynd: eysi

Er vit í því að treysta þessum bottum, kemur ekki stundum eithvað kjaftaæði út úr þeim.

eysi, 17.8.2009 kl. 21:42

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það er ekkert öruggt í heimi sem er algjörlega lygastýrður nema náttúrlega að lygavellan mun fyrr eða síðar springa í loft upp með braki og brestum. Það er jú algjörlega ómögulegt skv. skilgreiningu að sanna upplogna hluti og við sáum ruslveitur og pólitíkusa renna á rassinn með það hér heima og ég tel öruggt að hið sama gerist glóbalt. Lygaskjóðurnar eru alveg við það að fyllast.

Baldur Fjölnisson, 17.8.2009 kl. 22:12

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Forheimskunarbanki ríkisins hefur núna beilað út allar ruslveitur landsins. Þetta blasir við, bræður og systur. Ruslveita ríkisins hefur verið gjaldþrota forever á kostnað skattgreiðenda og ruslveitubanki ríkisins bjargaði ruslveitu moggans frá eðlilegu gjaldþroti og núna er sami ruslveitubanki skattgreiðenda að framlengja lífdaga ruslveitu Stöðvar tvö. Þetta mafíustýrða kerfi vill viðhalda lygum og forheimskan fram í rauðan dauðann í þágu sinna eigenda, það blasir algjörlega við.

Baldur Fjölnisson, 17.8.2009 kl. 22:22

7 identicon

Hvar er hægt að finna eitthvað um þetta bottum?

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 17.8.2009 kl. 22:28

8 Smámynd: Baldur Fjölnisson

halfpasthuman.com

Baldur Fjölnisson, 17.8.2009 kl. 22:30

9 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Fréttabréfið þeirra kostar smáaura en ég fékk það fyrir ekki neitt enda hef ég aldrei borgað fyrir nokkurn skapaðan hlut af internetinu þessi 20 terabæt sem ég hef sankað að mér só far.

Baldur Fjölnisson, 17.8.2009 kl. 22:46

10 Smámynd: eysi

Og á ekki að fara henda eithvað af þessu efni inná torrent

eysi, 18.8.2009 kl. 18:57

11 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Gerði það 24. júlí. Tengdur.net.

Baldur Fjölnisson, 20.8.2009 kl. 21:00

12 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Bill Deagle kom inn á dagsettninguna 7. okt. í viðtali við Protject Camelot í september í fyrra.  Þar sagði hann fyrir um efnahagslegt hrun sem verði notað til að hræða heiminn til hlýðni ef ég man rétt kemur þetta fram í Part 3 frekar en Part2.

http://www.youtube.com/watch?v=htdNzesY0Wg 

Magnús Sigurðsson, 24.8.2009 kl. 23:08

13 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ég fylgist með Deagle reglulega eins og mörgum öðrum utan opinberu ruslveitanna. Hann er með marga góða punkta eins og hinir en ég kaupi samt ekki alveg allt. Það er allt í lagi. Heimsmynd hvers og eins hlýtur ávallt að vera risavaxið púsluspil eins stór og heimurinn og hans gangverk er og svo er bara að raða hinum ýmsu upplýsingum saman.

Baldur Fjölnisson, 24.8.2009 kl. 23:49

14 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Bill Deagle virðist vera um margt sérstakur eins og við öll, en hann virðist hafa hitt naglann á höfuðið varðandi atburðina í október og ég hef ekki ástæðu til að efast um að hann hefur nokkuð fyrir sér hvað tilganginn varðar.

Ég er sammála þér með "ruslveiturnar" það er magnað að frá þessu raðgjaldþrota fyrirbærum byggjum við heimsmyndina, auk sama menntakerfis og menntaði hagfræðingana okkar.

Magnús Sigurðsson, 25.8.2009 kl. 00:10

15 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hann og hans gestir í útvarpsþættinum "The Nutrimedical Report" hafa fjallað mikið um þetta flensusjónarspil hins opinbera og fjárhagslegra kostenda þess og tætt það gjörsamlega í sundur.

Baldur Fjölnisson, 25.8.2009 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 115972

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband