8.10.2009 | 17:34
Gjaldþrot Seðlabankans: Ástarbréf bankans verstu mistökin fyrir hrun
Gauti B. Eggertsson, hagfræðingur við seðlabanka New York-ríkis í Bandaríkjunum hefur tekið saman það sem hann kallar verstu mistökin sem gerð voru í aðdraganda bankahrunsins og hruninu sjálfu í fyrra. Efst á blaði eru svokölluð ástarbréf Seðlabankans sem ollu því að bankinn varð gjaldþrota. Slíkt gjaldþrot seðlabanka er óþekkt í vestrænni sögu.
Stærstu mistökin eru líklega fólgin í veðlánaviðskiptum Seðlabanka Íslands sem ollu gjaldþroti hans. Í þessum viðskiptum töpuðust um 300 milljarðar, sem jafnast á við um 1 milljón á hvert mannsbarn á Íslandi, eða um 5 milljónir á hverja þriggja barna fjölskyldu. Þessi mistök lenda beint á íslenskum skattgreiðendum," segir Gauti á bloggsíðu sinni þar sem hann fjallar um stærstu mistökin að hans mati.
Þetta eru mun hærri fjárhæðir en líklegt er að falli á almenning vegna icesave. Það sem verra er þessar byrðar falla strax á almenning, en ekki eftir 7 ár eins og icesave. Hinn harkalegi niðurskurður ríkisútgjalda og gífurlegu skattahækkanir má að stórum hluta rekja til þessara afdrifaríku mistaka."
http://visir.is/article/20091008/VIDSKIPTI06/456258325
http://gautieggertsson.blogcentral.is/blog/2009/10/7/thad-versta-og-besta-i-hruninu/
Gauti segir að með nokkuð grófri einföldun megi lýsa ástarbréfunum sem svo að bankarnir hafi skrifað skuldabréf hvern á annan. Þannig prentaði Kaupþing skuldabréf uppá eina krónu og lét Landsbankann fá, gegn skuldabréfi uppá eina krónu sem Landsbankinn prentaði. Svo fóru þeir báðir í Seðlabankann og fengu lán með veði í þessum skuldabréfum hver á annan. Sumir kölluðu þetta ástarbréf bankana til hvers annars," segir Gauti.
Í hruninu námu lán af þessu tagi um 30 prósentum af þjóðarframleiðslu. Þegar allt fór á hausinn voru þessi skuldabréf auðvitað verðlaus. Í stuttu máli má segja að með þessum viðskipum hafi bankarnir í raun og veru fengið heimild til að prenta peninga fyrir sjálfan sig án þess að leggja fram nokkur haldbær veð, nema ástarbréf hvers til annars. Allt á kostnað skattgreiðenda."
Fram kemur að til að mynda hefði Seðlabanki Íslands geta krafist veðs í öllu innlánasafni viðskiptabankana sem ... hefði verið skynsamleg lausn. Ef það hefði verið gert, hefði Seðlabankinn í raun verið eigandi nýju bankanna við hrunið, frekar en erlendu kröfuhafarnir. Þá hefði engin ástæða verið fyrir íslenska ríkið að dæla inn 300 milljörðum til að koma í veg fyrir gjaldþrot seðlabankans. Og skattar íslenskra ríkisborgara hefðu ekki hækkað jafn mikið og nú er rauninn."
Gauti segir síðan að þótt neyðarlögin hefðu verið að mörgu leyti skynsamleg voru ein afdrifarík mistök gerð í smíði þeirra laga sem gerðu hrunið mun kostnaðarsamara fyrir landsmenn.
Helsta ákvæði neyðarlaganna var það, að innlán urðu forgangskrafa í þrotabú gömlu bankanna. Þetta var skynsamlegt ákvæði. Mikilvægur hlutur gleymdist, hins vegar. Skynsamlegast hefði verið að gera tryggðar innistæður sem fyrstu forgangskröfu," segir Gauti.
Ef neyðarlögin hefðu verið skrifuð svona hefði það þýtt að allar eignir Landsbankans hefðu fyrst farið í að greiða icesave. Skaði þjóðarbúsins hefði því orðið lítill sem engin af þessum þætti hrunsins, og við stæðum væntanlega ekki ennþá í deilum við Breta og Hollendinga."
Um bloggið
Baldur Fjölnisson
Nýjustu færslur
- Torfi Stefáns bannaður ævilangt
- OL í skák. Landinn malaði Keníu í 9. umferð
- OL í skák: Landinn í 88. sæti eftir 8 umferðir
- Meðaljónar í skákinni
- Baggalútur - Sagan af Jesúsi
- Eitrað fyrir lýðnum?
- Óvenjulega döpur taflmennska innfæddra einkennir Reyjavíkursk...
- U.S. Rushes Coolant to Japanese Nuke Plant After Earthquake
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kjartansson
-
Björgvin Gunnarsson
-
Brynjar Jóhannsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
FreedomFries
-
Fríða Eyland
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gestur Guðjónsson
-
Gils N. Eggerz
-
Gullvagninn
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Gísli Hjálmar
-
Hagbarður
-
Halla Rut
-
Haraldur Haraldsson
-
Hilmar Kári Hallbjörnsson
-
Hlekkur
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Aðalsteinn Jónsson
-
Jón Ragnarsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Karl Tómasson
-
Kári Magnússon
-
Loopman
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Promotor Fidei
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sandra María Sigurðardóttir
-
SeeingRed
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Þórðarson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
el-Toro
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Tryggvi Hjaltason
-
TómasHa
-
Túrilla
-
Upprétti Apinn
-
gudni.is
-
haraldurhar
-
proletariat
-
Ívar Pálsson
-
Ómar Ragnarsson
-
Ónefnd
-
Óskar
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórir Kjartansson
-
Arnar Guðmundsson
-
Bara Steini
-
Birgir R.
-
Birgir Rúnar Sæmundsson
-
brahim
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bwahahaha...
-
Dingli
-
eysi
-
Gestur Kristmundsson
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Hlini Melsteð Jóngeirsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
kreppukallinn
-
Kristín Magdalena Ágústsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Neo
-
Orgar
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rauði Oktober
-
Skákfélagið Goðinn
-
Sveinn Þór Hrafnsson
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þór Ludwig Stiefel TORA
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.