Davíð flýtir raðgjaldþrotum moggaruslveitunnar

Það er eini tilgangur þess að ráða manninn til ruslveitunnar og eina rekstrarmódelið sem mun virka hjá henni úr þessu er gjaldþrot og skuldaniðurfelling á þetta 6-12 mánaða fresti. Þetta er þegar í raun gjaldþrota og enn hroðalega yfirmannað og ofurfjárfest eftir að ríkisbanki setti síðasta þrotabú ruslveitunnar á í bili. Eigendum hennar er því mjög brátt í brók að koma henni á hausinn aftur og hlutverk Davíðs er því fyrst og fremst að fækka áskrifendum, minnka lestur og lækka þannig tekjur bæði af sölu sjálfs skeinipappírsins og auglýsingum. Mér skilst að honum hafi þegar tekist að losa ruslveituna við yfir 3000 áskrifendur þannig að árangurinn er þegar verulegur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Líklega er raðgjaldþrotið búið að vera okkar helsta rekstrarmódel í áratugi. Til að mynda hefur ekkert hótel borið sig nema fara fyrst þrisvar á hausinn.

Útrásin og allt það, var líka ákveðin útfærsla af raðgjaldþrotamódelinu.

Og nú er Mogginn kominn með þetta rekstrarmódel.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 16:02

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Gjaldþrot eru í sjálfu sér eðlilegur og óumflýjanlegur þáttur kapítalísks kerfis. En skipulögð gjaldþrot glæpamanna í ábataskyni, meira og minna undir verndarvæng sýndarlöggæslu, hefur smám saman útrýmt trúverðugleika þess kerfis. Glæpamennirnir hafa síðan kostað og átt pólitískt kerfi sem hefur haldið úti sýndarlöggæslu til að skapa almenningi falskt öryggi á meðan hreinsað er innan úr draslinu. Sérvöldum kjánum og nytsömum sakleysingjum hefur síðan verið stillt á toppinn á gervilýðræðiskerfinu sem gerir þetta allt mögulegt fyrir mafíuna. Hér á landi höfum við séð þetta ferli í hnotskurn á síðustu árum og hver vitleysingurinn af öðrum hefur hrökklast úr forsætisráðuneytinu undan eigin rugli en mér sýnist bara einn vera enn gjammandi út í loftið. Hinir virðast að mestu hafa rænu á að þegja.

Baldur Fjölnisson, 5.10.2009 kl. 18:50

3 identicon

Það er ljóst að mafíustarfsemin hefur ekkert minkað, þrátt fyrir að heiðarlegt fólk sé komið að völdum.

Steingrími og Jóhönnu hlýtur að vera haldið sofandi, annað hvort með lyfjum eða rafbylgjum. Það er ekki einleikið hversu blind þau eru á það sem er að gerast. 

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 19:38

4 identicon

Nánast allt þetta lið í æðstu stöðum hefur fengið krabbamein eftir störf í Stjórnarráðinu. Það segir mér að þarna séu sterkar rafsegulbylgjur, annað hvort í streng sem liggur neðanjarðar eða að bylgjunum sé beint þangað loftleiðina.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 19:47

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það fá nánast allir krabbamein nú á dögum enda eitrað skipulega fyrir liðinu og þrotlaust dælt í það óþverra allt frá fæðingu. Núna á síðan að herða enn á og leppar hér á landi hafa fengið fyrirmæli að utan um að sprauta útrunnu og gagnslausu bóluefni gegn fuglaflensu í hreinlega alla landsmenn til að verja þá gegn svínaflensu. En það verður sjálfsagt erfitt að ljúga það áfram og vafalaust fer megnið af þessu drasli á haugana. Skattgreiðendur borga brúsann.

Baldur Fjölnisson, 6.10.2009 kl. 09:49

6 identicon

Víða í gamlabænum eru háspennulínur við húsin eða jafnvel undir þeim.

Kunningjafólk mitt keypti fyrir nokkru hús í gamlabænum. Þar er spennistöð í viðbyggðum skúr.

Ekki leið á löngu þar til kallinn drapst úr krabba. Konan er komin með ungling til að ríða sér og krakkarnir eru orðnir kolvitlausir.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 11:35

7 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Gáfulegt eða hitt þó heldur að vera með spennistöð utan á húsinu sínu.  Er þetta sem sagt hér í Reykjavík ???

Baldur Fjölnisson, 6.10.2009 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband