Mafían átti og á greinilega enn sýndarlöggæsluna

Mjög svo mikilvægur þáttur í skipulögðum þjófnaði og útflutningi landsins á síðustu árum var sýndareftirlit og sýndarlöggæsla - sem ætlað var að skapa almenningi falskt öryggi á meðan hann var rændur. Þannig fullvissuðu opinberar eignir mafíunnar landsmenn um að spilaborgir mafíunnar "stæðust álagspróf" allt þar til ekki var lengur hægt að ljúga spilaborgirnar uppi lengur, búið að hreinsa innan úr þeim og orðið hægt að henda leifunum í skattgreiðendur. En sýndareftirlitið þvælist enn fyrir eins og kemur fram í fréttum núna. Það gengur erfiðlega að fá gögn vegna þagnarskyldu og bankaþagnar í mafíunni og opinbert eignarhald mafíunnar nær greinilega það langt að gúmmístimplar hennar allt upp í ríkisstjórn hafa ekkert við það að athuga. Þetta liggur alveg fyrir en hvernig það getur gerst er mér hulið nema þetta sé bara allt saman eitt allsherjar hóruhús og öll yfirstjórn þjóðfélagsins til sölu en hórurnar kannski bara misódýrar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Já, það er eins og það sé eitthvert samsæri um að ræna almúgann. Það var frétt einhverstaðar um Hróa hött, sem búið er að gera að hetju, að hann hafi stolið frá þeim ríku og fært þeim fátæku. Þetta var góð hugmynd, en víst ekki alveg sönn (enda bara fantasía). En það virðist vera löglegt að stela frá Íslenskum almúga og gefa þeim ríku.

Það er eins og það sé keppni um það hver getur rænt mestu og hver fer best út úr því (fjárhagslega)

Þetta hefur mjög líklega ekki verið svona áætlað að fella Ísland í fjárhagsánauð, en það mátti heldur betur reyna að blóðmjólka það.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 17.3.2009 kl. 13:57

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Nú upplýsir ríkisskattstjóri að framtaldar skuldir einstaklinga og fyrirtækja hafi numið hátt í 16 þúsund milljörðum króna í árslok 2007 ! Þegar við er bætt skuldahækkunum síðan þá og skuldum hins opinbera og sveitarfélaga er þetta vafalaust upp á 20 þúsund milljarða varlega áætlað eða sirka 250 milljónir per 4ra manna fjölskyldu. Möo, þetta er algjörlega óviðráðanleg hít, landið er gjörsamlega fallít og hreinlegast að taka það strax til gjaldþrotaskipta.

Baldur Fjölnisson, 18.3.2009 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband