10.3.2009 | 23:49
Silkihanskarnir duga ekki lengur
Innprentuð kóunarsýki og vel tamin klappstýruhjörð hélt yður sofandi á meðan kostendur þeirrar stefnu hreinsuðu innan úr hagkerfinu. Landinu hefur beisíkallí verið stolið í rólegheitunum á síðustu árum og það flutt út. Og til þess að væri framkvæmanlegt hafa landsins mest útjöskuðu pólitísku hórur og smáhórur í kringum þær verið í lykilstöðum hér og þar um opinbera kerfið og á ruslveitum og síðan fullkomna ræsarottur sem kallast álitsgjafar þessa veruleikahönnunarmaskínu úr helvíti. Pólitíski hórumarkaðurinn er fyrir löngu gjörmettaður eins og annað í þessu sápukúlukerfi og því höfum við séð rotturnar bögglast á blogginu og í míkróinnleggjum í ruslveitunum.
En þetta hóruvæl gengur ekki lengur. Hagkerfið er hrunið, þjóðarbúið er gjaldþrota og það hefur geigvænleg þjóðfélgsleg áhrif. Fjölskyldur brotna og fólk brotnar og margir deyja fyrir aldur fram. Þetta er óþolandi ástand og við eigum ekki að líða það. Og við eigum ekki að láta hórur og rottur smjörklípa áfram þennan harða veruleika út af borðinu. Siðlausir öfgamenn settu okkur á hausinn og fólk sem er 180 gráður frá þeim þarf auigljóslega að rétta okkur við. Á morgun mun ég lýsa því hvernig ég mun finna peningana og jafnframt nýta hátt áburðarverð til að fá raunveruleg verðmæti úr bæði hórum og rottum í gúanóframleiðslu. Lifið heil.
Um bloggið
Baldur Fjölnisson
Nýjustu færslur
- Torfi Stefáns bannaður ævilangt
- OL í skák. Landinn malaði Keníu í 9. umferð
- OL í skák: Landinn í 88. sæti eftir 8 umferðir
- Meðaljónar í skákinni
- Baggalútur - Sagan af Jesúsi
- Eitrað fyrir lýðnum?
- Óvenjulega döpur taflmennska innfæddra einkennir Reyjavíkursk...
- U.S. Rushes Coolant to Japanese Nuke Plant After Earthquake
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kjartansson
-
Björgvin Gunnarsson
-
Brynjar Jóhannsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
FreedomFries
-
Fríða Eyland
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gestur Guðjónsson
-
Gils N. Eggerz
-
Gullvagninn
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Gísli Hjálmar
-
Hagbarður
-
Halla Rut
-
Haraldur Haraldsson
-
Hilmar Kári Hallbjörnsson
-
Hlekkur
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Aðalsteinn Jónsson
-
Jón Ragnarsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Karl Tómasson
-
Kári Magnússon
-
Loopman
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Promotor Fidei
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sandra María Sigurðardóttir
-
SeeingRed
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Þórðarson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
el-Toro
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Tryggvi Hjaltason
-
TómasHa
-
Túrilla
-
Upprétti Apinn
-
gudni.is
-
haraldurhar
-
proletariat
-
Ívar Pálsson
-
Ómar Ragnarsson
-
Ónefnd
-
Óskar
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórir Kjartansson
-
Arnar Guðmundsson
-
Bara Steini
-
Birgir R.
-
Birgir Rúnar Sæmundsson
-
brahim
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bwahahaha...
-
Dingli
-
eysi
-
Gestur Kristmundsson
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Hlini Melsteð Jóngeirsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
kreppukallinn
-
Kristín Magdalena Ágústsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Neo
-
Orgar
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rauði Oktober
-
Skákfélagið Goðinn
-
Sveinn Þór Hrafnsson
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þór Ludwig Stiefel TORA
Athugasemdir
Þeir hafa verið ótrúlega hugmyndaríkir við að hreinsa innan úr öllum rekstri. Eins og t.d. sparisjóðunum.
Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 16:51
Þetta sprakk svo snögglega í loft upp vegna þess að ekki var hægt lengur að þegja þessa skipulögðu glæpastarfsemi lengur í hel. Hefðbundna mafían, þessi sem er upprunin á Stóru Sikiley, gekk lengi mjög vel vegna strangrar þagmælsku meðlimanna og á að hóta og hreinlega kaupa pólitíkusa, ruslveitur og aðra helstu veruleikahönnuði almennings (þetta grunnhugtak gengur eins og rauður þráður í gegnum rekstur samtíðarinnar á hverjum tíma) en þegar það kerfi rofnaði þá hnignaði glæpamaskínan og veldi hennar dróst saman.
Hönnun veruleikaskynjunar í þjóðfélagi fer almennt þannig fram að ríkjandi þjóðfélgashópur skapar sitt afbrigði veruleika og reynir síðan að koma því inn í veruleikaskynjun annarra hópa. Allt er þetta í þágu ákveðinna hagsmuna, eins og gefur að skilja. Hluti meðlima þjóðfélagshópanna sem verða fyrir veruleikahönnuninni að ofan úr ráðandi hópnum meðtaka veruleikann og gera hann að sínum, aðrir mynda sín eigin veruleikaafbrigði. Þjóðfélagið er þar af leiðandi samansett af hópum sem halda fram mismunandi veruleikaskynjun og veruleikaafbrigðin rekast stöðugt á og berjast um að ná yfirhöndinni.
En að sjálfsögðu er ekki til neinn einn absalútt réttur eða endalaus veruleiki aðeins mismunandi túlkanir á því hverig veruleikinn ætti að líta út og birtast okkur og síðan er hægt að túlka orðin sjálf og málið sem menn nota til að prómótera þennan veruleika á ýmsa vegu. Málið sjálft, tjáningarformið, þróast síðan og breytist stöðugt ekki síst eftir endalausa árekstra hinna ýmsu veruleika hönnunarhópa og flækir það enn frekar hina endalausu leit mannskepnunnar að veruleikanum. En nú er ég búinn að hugsa um þetta í heilt kortér og þegar farið að verkja í hausinn vegna ofnotkunar og segi því amen og kúmen í bili.
Baldur Fjölnisson, 11.3.2009 kl. 21:08
Fyrir endalaus les: endanlegur.
Veruleikinn sem ráðandi hópurinn hefur reynt að þröngva inn á okkur snýst mikið um einhvers konar eilífan nútíma, tilveru án fortíðar, allt er nýtt og sagan á helst að byrja upp á nýtt hvern morgun þegar þú vaknar. Og til að henda fortíðinni á bak við þig þarftu helst að skipta um allt reglulega og konuna og hundinn líka og byrja nýtt líf upp á nýtt á raðgreiðslum. Og þú átt ekki að pæla í hinu liðna heldur horfa ávallt fram á veginn. Þið kannist við þessa innrætingu. Hún er á glóbal skala. Það hefur aldrei orðið til minnsti vottur af frumlegri hugsun í kolli Dabba og Dóra og jábræðra þeirra, þeir hafa fengið þetta allt innprentað í sína heimsku hausa á skipulögðum námskeiðum og málþingum og fengið síðan fullt af handátum í nestið.
Baldur Fjölnisson, 11.3.2009 kl. 21:23
Allar landsins skúringadömur luku mastersprófi í einhverju fyrir nokkrum misserum og það skapaði markaðslegt tómarúm sem var snarlega fyllt af grönnum og lúsiðnum pólskum konum. En allir masterarnir eru komnir í vinnu í yfirbyggingu þjóðfélagsins og þurfa meira og minna aðstoðarmenn vegna lesblindu og menntunarskorts úr gerviháskólum sem eiga langt í land að teljast einu sinni á háskólastigi. Hver er lausnin, jú að reka skúringadömurnar, er það ekki gamalkunnugt, er þetta ekki nákvæmlega í hnotskurn sama gamla veruleikahönnunin úr ráðandi grúppu þjóðfélagsins og að sjálfsögðu vill hún ekki að þið fælið í fortíðinni og hennar eigin hugmyndafátækt og skorti á hugmyndafræði sem sé í þágu heildarinnar en ekki fyrst og fremst hennar sjálfrar.
Baldur Fjölnisson, 11.3.2009 kl. 22:34
Sem einstaklingur hef ég lengi fúnkerað sem eins konar sjálfstæður veruleikahönnuður í þjóðfélgshópnum sem hefur orðið fyrir barðinu á veruleikahönnuninni að ofan. Það er sem sagt millistéttin sem valdaelítan vill útrýma til þess að ekkert verði eftir nema hún og þrælar hennar. En samt hef ég vonandi náð að skapa nýyrði á borð við veruleikahönnun og raðlygara og mikið meira get ég sjálfsagt ekki lagt að mörkum ef eitthvað. En tungumál og tjáning og túlkun stjórna þessu öllu saman og hvaða ruslveitur og pólitíkusar og keyptir álitsgjfar hóra það áfram.
Baldur Fjölnisson, 11.3.2009 kl. 23:36
Þetta er athyglisverð pæling.
Til að ná tökum á veruleikahönnuninni reyna menn jafnvel að ná valdi yfir tungumálinu, og því hvað orðin þýða. Karl Rove, sá sem hannaði ímyndina í kring um Bush, var víst snillingur í þessu.
Það skiptir öllu hvað hlutirnir eru kallaðir. Innrás eða frelsun getur átt við það sama, einnig hryðjuverk eða landvarnir. Svona má eflaust lengi telja.
Það var ekki fyrr en núna í bankahruninu sem félagshyggjufólk fór að ná vopnum sínum í notkun tungumálsins varðandi frjálshyggjuliðið.
Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 23:39
Hmm, þar sem ég vinn kölluðu menn mig fyrir löngu meistara fyrir að enduruppfinna hjólið.
Baldur Fjölnisson, 11.3.2009 kl. 23:56
Sveinn, tungumálið er að sjálfsögðu lykillinn. Það er tjánigarformið sem menn nota til að koma hugmyndum sín á milli. Síðan er það notað eftir hagsmunum ráðandi þjóðfélgsgrúppu sem ég nefndi að ofan. Kommmúnistaáróður og bandaríkjahatur og gyðingahatur og whatever verða sjálfvirk atriði sem stoppa ónauðsynlega hugsun. En samt er ekki mögulegt til lengdar að hemja hugsun þeirrar furðulegu skepnu sem mannskepnan er.
Baldur Fjölnisson, 12.3.2009 kl. 00:21
Við þurfum ekkert að spá i gjörheilög hugtök á borð við frelsi og lýðræði, það er hafið yfir alla umræðu sem kunnugt er og aðeins ruglaðir trúvillingar myndu taka séns á að verða brenndir á báli eða verða sendir á gúlagið eða guantamo bay fyrir andmæla því. Fólk er pyndað og það deyr á óljósum forsendum og við rífumst um málfræði. Hvað með að reyna að greina hvað raunverulega býr að baki og bregðast við þeirri vitneskju.
Baldur Fjölnisson, 12.3.2009 kl. 00:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.