Raunefnahagslífið ekki hrunið - viðskiptaráðherra

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að skuldir íslenska ríkisins munu aukast mjög á næstunni og verða álíka miklar og árleg landsframleiðsla.

Skuldirnar verða þó hlutfallslega aðeins lítillega meiri en ríkisskuldir Belgíu og Ítalíu voru áður en kreppan skall á. Þetta segir Gylfi í viðtali við þýska blaðið Welt am Sontag. Þegar Gylfi er spurður að því að hvernig Ísland ætli að borga þessar skuldir segir hann að það verði erfitt. Skatttekjur ríkisins dragist saman um leið og útgjöld vegna atvinnuleysis aukist. Hins vegar verði að hafa í huga að þótt bankarnir hafi hrunið þá sé raunefnahagslífið ekki hrunið.

Gylfi segir jafnframt ljóst að reikningseigendur hjá Kaupþingi í Þýskalandi fái greitt út af reikningum sínum enda viti hann ekki betur en eignir bankans dugi til. Vanti uppá þurfi íslenska ríkið að greiða mismuninn. Hann segir skuldir Íslands aukast verulega á næstunni og verða á við árlega þjóðarframleiðslu.

Viðtal sem Financial Times Deutschland birti við Ólaf Ragnar Grímsson fyrir rúmri viku olli nokkru uppnámi í Þýskalandi. Þar var því var haldið fram að Íslendingar myndu ekki greiða skuldir við erlenda reikningseigendur hjá bönkunum. Í viðtalinu við Welt am Sonntag segir Gylfi hins vegar að skuldirnar verði greiddar. Ríkið hafi ekki um annað að velja en að hækka skatta til að greiða þessar skuldir og aðrar skuldir Íslands erlendis. Auk þess skipti miklu máli að snúa viðskiptahallanum við. Fall krónunnar komi þar til góða þar sem útflutningur aukist en innflutningur dragist saman. Verði kreppan dýpri og lengri um allan heim komi það sér hins vegar illa fyrir Ísland. Aðspurður um íslensku bankana og umsvif þeirra í útlöndum, segir Gylfi ljóst að þeir verði hvergi nærri jafn umsvifamiklir og fyrir kreppu þar sem þeir hafi gengið of langt. Nú sé lögð megináhersla á að bankarnir geti sinnt grunnþjónustu á Íslandi.

Síðast uppfært: 23.02.2009 08:06

RUV.IS

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband