Skollaleikur með stýrivexti og skuldabréf

Skuldabréf eru seld á gengi. Það þýðir að gengi og ávöxtunarkrafa hreyfast í gagnstæðar áttir. Þegar vextir hækka lækkar gengi bréfanna og öfugt. Þetta þýðir að 6 prósentustiga stýrivaxtahækkun AGS hér í haust var lítið annað en bókhaldstrix til bráðabirgða til að reyna að fela algjört gjaldþrot seðlabanka og ríkissjóðs og raunar þjóðarbúsins alls. Skuldabréfamiðlarar ættu að geta upplýst ykkur um hvaða áhrif td. stýrivaxtalækkun í 8-10% eða lægra myndi hafa á gengi skuldabréfa og þar með skuldastöðu skuldaranna. Það snýst áreiðanlega um hundruði milljarða amk.

Það er absalútt lífsnauðsynlegt að stórlækka vexti. Velta í hagkerfinu er að hrynja og verð fellur því ört. Verðhjöðnun er nokkuð sem skuldum hlaðin kerfi þurfa síst af öllu. Hún eyðileggur verðhækkunarmöguleika fyrirtækja, gerir þeim ókleift að hækka laun starfsfólks eða jafnvel halda því í vinnu og gerir fólki og fyrirtækjum erfiðara að standa í skilum. Afleiðingarnar eru að byrja að koma í ljós hér á landi í gjaldþrotahrinu og fjöldaatvinnuleysi. Aðeins vitfirringar myndu halda uppi himinháum stýrivöxtum seðlabanka við slíkar aðstæður, nema ætlunin væri hreinlega að keyra hagkerfið allt á hausinn. En reyndar stýrist þetta fyrst og fremst af skollaleiknum sem ég lýsti í fyrra innleggi, gjaldþrot seðlabanka og ríkissjóðs er náttúrlega mikið feimnismál og vandræðalegt að þurfa að ræða slíkt og því hafa menn reynt að smjörklípa forsmánina út úr myndinni amk. í bili með því að viðhalda þessum háu stýrivöxtum og þar með keyra niður gengi skuldabréfa sem hvíla á þrotabúum seðlabanka og ríkissjóðs. Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband