Ég skal með ánægju hafa upp á peningunum fyrir 2% þóknun

Til þess þarf ég ákveðna aðstöðu, geymslupláss fyrir menn og sirka 100 lögreglumenn. Risavaxin íþróttahús borgarinnar mætti vel stúka niður í þessu skyni. Þegar menn sem gætu lúrað á upplýsingum um stórar fjárhæðir erlendis koma á minn fund eru þeir strax beðnir að upplýsa um allt sem ég vil vita og gangi það ekki eru þeir reyrðir niður á bekk, fá svartan poka á hausinn, næringu í æð og þetta ástand þeirra varir þangað til þeir verða samvinnuþýðir og skila peningunum eða drepast úr leiðindum. Ég get garanterað yður nú þegar 98% árangri þannig að það er ekki eftir neinu að bíða.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: doddý

master - æ sjall bí ðe geit kíper

doddý, 2.2.2009 kl. 21:21

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þegar þeir mæta í yfirheyrslustöðvar mínar eru þeir þegar í stað afklæddir, settir í sturtu og fá hvíta sjúkrahúsasloppa og sandala. Sjálfur verð ég í Armani-fötum við yfirheyrslurnar og hef tekið fimm milljóna meikóver. Það er nú óvíst að þurfi yfirleitt að koma til svarta pokans þar sem vel má vera að þeir brotni fljótlega þegar við sex tíma fyrirlestra mína. En hvað sem öðru líður; þetta verður algjör bargein - þvingað - og þessum tuttugu milljörðum sem ég mun þéna með léttum leik verður að mestu dreift aftur til lýðsins. Amen.

Baldur Fjölnisson, 2.2.2009 kl. 21:57

3 identicon

Þetta yrði svona Íslenskt Guantanamo.

En áhuginn á að upplýsa málin er í öfugu hlutfalli við ætlaðan glæp. Þeir nota hiklaust þyrlur og hunda til að elta uppi smákrimma, en þeir eru ekki enn byrjaðir að yfirheyra mennina sem settu þjóðina á hausinn og rændu auk þess þúsundum milljarða af erlendum bönkum.

Það eru mánuðir síðan þetta varð nokkuð ljóst.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 20:49

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Nei nei, hjá mér verður enginn pyndaður. Að vísu mun ég fá lánaðar vídeóupptökur frá Guantanamo og Írak og verð með kósí vídeókvöld með hinum grunuðu og umræður á eftir um efnið, td. um hvernig væri að fá kylfu ##### # rafgeymasýru ### # #########. Málið snýst um árangur. Maður fer ekki út í svarta pokann og næringu í æð fyrr en ljóst er að viðkomandi aðilar vilja ekki skila peningunum.

Þetta er helv. alvarleg staða sem við erum í með algjörlega gjaldþrota þjóðarbú og samvirkan glæpalýð og nytsama sakleysingja sem hafa logið þetta gjaldþrot í gegn. Síðan kostar óhemju fjármuni að reka þetta djöf. dót - sem augljóslega þýðir að glæpalýðurinn er í rauninni hið löglega norm. Þannig að þetta er algjörlega siðlaust og gegnrotið kerfi. Ég vil virkilega taka á þessum óþverra.

Baldur Fjölnisson, 4.2.2009 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband