Leppskækjur í æðstu stöðum siga lögreglunni á almenning en forðast að hrófla við eigendum og kostendum sínum

Segja skjaldborg Geirs ekki vera um fjölskyldur heldur glæpamenn

mynd
Öll spjót standa nú á Geir H. Haarde forsætisráðherra á bloggsíðum landsmanna en ákvörðun Ólafs Helga Kjartanssonar sýslumanns, um að gefa út handtökuskipun á fjölda manns sem ekki hefur sinnt fjárnámsboðun, er líkt við skipulagða aftöku.

Sú ákvörðun sýslumannsins í Árnessýslu að gefa út handtökuskipun á 370 manns, fyrir að hafa ekki mætt hjá embættinu vegna fjárnáms, hefur vakið hörð viðbrögð í bloggheimum. Lesa má athugasemdir eins og að stjórnvöld skipuleggi nú aftökur almúgans á meðan spillingaröflin sleppa.

Rifjað er upp að Geir Haarde sagði að slá þyrfti skjaldborg um fjölskyldurnar, en í reynd slái hann skjaldborg um glæpamennina, sem settu þjóðina á hausinn, svo dæmi séu tekin úr bloggheimum. Samkvæmt handtökuskipun sýslumanns, verður fólkið handtekið á heimilum þess eða vinnustöðum og fært fyrir sýslumann eða fulltrúa hans.

visir.is 20.1.2008


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bylting næsta laugardag, það er ekkert annað í spilunum!

DoctorE (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 08:52

2 Smámynd: doddý

auðvitað er hordanum drullusama um eitthvað fólk út í bæ, svo lengi sem hann vermið rassgatið á sér í alþingisstól.

heilbrigðisráðherra er drullusama um einhverja sjúklinga sem þurfa að húka frammi á gangi, svo lengi sem hann fái fyrstu þjónustu.

auðvitað er handboltafríkinni drullusama um menntaskrílinn meðan hennar fólk þarf ekki á sérkennslu að halda

doddy hefur talað

doddý, 21.1.2009 kl. 13:23

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Haha, vel mælt.

Það þorir ekki einu sinni að mæta í vændiskassann á Austurvelli í dag, LOL.

Annars missti ég af öllum þessum hamagangi enda dæmigerður smáborgari á kafi í vinnu og get ekkert farið frá.

Baldur Fjölnisson, 21.1.2009 kl. 17:19

4 Smámynd: doddý

.. vændiskassann  thí hí. og dólgarnir fyrir utan með lykteyði á brúsa og kúst í hendi! kv d

doddý, 22.1.2009 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband