Villi Egils reynir þó enn að vera hreinskilinn, öfugt við lygamaskínuna sem hann tilheyrir

Viðskipti | mbl.is | 21.10.2008 | 18:28
Spá 10% efnahagssamdrætti

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að SA geri nú ráð fyrir því að íslenska hagkerfið muni dragast saman um allt að 10% í kjölfar hruns fjármálakerfisins. [sem sjálfsagt þýðir 25% þegar bókhaldsleikfimi hagtalnahönnuða hins opinbera verður reiknuð úr ljósaskiptunum hingað niður á jörðina] Hann segir að atvinnuleysi á næsta ári gæti orðið 6-8%. [spurning hvort hann heldur að atvinnuleysið núna sé 1% eins og Lísa í undralandi í Vinnumálastofnun heldur fram eða rúmlega 3% eins og kemur fram hjá Hagstofunni. kannski er hann raunverulega að meina 10-15%.]

„Við sjáum fyrir okkur að verg landsframleiðsla muni dragast saman um í kringum 10%," segir Vilhjálmur við Reutersfréttastofuna. [við settum fimm miða með 10, 12, 15, 20 og 25 í hatt og drógum einn og vorum svona líka ljónheppnir.]

Hann segir að landsframleiðslan í ár verði líklega nánast óbreytt frá því sem var í fyrra því aukningin fyrr á þessu ári vegi upp þann samdrátt sem verði nú í árslok.

Vilhjálmur segir, að búast megi við að hagvöxtur verði á ný árið 2010 því tækifæri séu fyrir nýja aðila á íslenskum markaði, einkum í fjármálageiranum.

„Ég held, eða vona, að við munum ná okkur á strik fyrr en margir halda," segir Vilhjálmur. Hann segist búast við að 7000 störf muni tapast á næstu vikum og mánuðum og atvinnuleysi verði 3,5-4% [með öðrum orðum 20% þegar risavöxnum atvinnuleysisgeymslum ríkisins og dagvistun skólakerfisins hefur verið bætt við]. Það gæti farið í 6-8% á næsta ári sem yrði það mesta í meira en áratug.

Hann segir að afar fá fyrirtæki hagnist á þessari stöðu og útflutningsfyrirtæki verði fyrir tjóni, þrátt fyrir gengisfall krónunnar, vegna þess að markaðir hrörna. [og innflutt aðföng hækka í verði vegna uppgufunar krónunnar]

Verst verði staðan þó væntanlega hjá byggingarfyrirtækjum og þjónustufyrirtækjum [jamm, þetta brandarahagkerfi byggist að miklu leyti á því að hver þjóni undir rassgatið á öðrum og hefur því lengi verið dæmt til að hrynja eins og spilaborg]. Nú sé mikilvægast, að styrkja krónuna sem muni auðvelda viðskipti við útlönd.

Þá segir Vilhjálmur, að verðbólga, sem hafi verið vandamál á Íslandi árum saman, muni hjaðna þegar ró færist yfir gjaldmiðilinn. „Við munum ekki sjá neina varanlega verðbólgu," segir hann. „Við erum að horfa á breytingu á hlutfallslegu verði. Það mun ekki hefjast víxlverkum launa og verðlags og það sem við mælum sem verðbólga mun lækka. [rétt, heimurinn er gjörsamlega að drukkna í offramleiðslugetu og æðislegur innflutningur á verðhjöðnun og offramleiðslugetu frá Asíu mun áfram vinna gegn heimatilbúinni verðbólgu. verðhækkanageta fyrirtækja er auk þess engin vegna gífurlegrar skuldsetningar almennings og hrikalegs eignatjóns hans undanfarið.]

Hann segir að stöðugur gjaldmiðill sé einnig lykillinn að því að koma í veg fyrir að kaupmáttur launa hrapi. [krónan er gufuð upp en það er huggun harmi gegn að vakúm er vissulega stöðugt] Nú sé hins vegar útlit fyrir að kaupmáttur minnki um 15% á næstu 6-9 mánuðum. [það munaði svona miklu að Villi nefndi stöðugleikann en annars forðaðist hann ódýr auglýsingatrix pólitíkusa, þó fyrrum pólitíkus sé - mér finnst hann fremur aðlaðandi kostur sem fjármálaráðherra í bráðabirgðastjórninni]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

takk fyrir þessa túlkun, nú á tímum "doublespeak" þarf í raun að túlka allt úr tungumáli lala-lands yfir á eitthvað sem hefur þýðingu fyrir almenna borgara,

þessa dagana hljómar mikið gamalt spilverk þjóðanna lag - ég er með það á heilanum, með örlítið breyttum texta þó:

og verðið sem var leyft í dag
er okkar verð að morgni
-nýjar lygar daglega

Gullvagninn (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 22:38

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

"""Þá segir Vilhjálmur, að verðbólga, sem hafi verið vandamál á Íslandi árum saman, muni hjaðna þegar ró færist yfir gjaldmiðilinn. „Við munum ekki sjá neina varanlega verðbólgu," segir hann. „Við erum að horfa á breytingu á hlutfallslegu verði. Það mun ekki hefjast víxlverkum launa og verðlags og það sem við mælum sem verðbólga mun lækka."""

Að sjálfsögðu felst RAUNVERULEG verðbólga í verðfalli peninga (skulda) vegna offramleiðslu þeirra.  Verð peninganna fellur og verð þess sem hægt er að kaupa fyrir þá hækkar skiljanlega á móti.

Hins vegar í eðlilegu markaðskerfi jafngilda verðhækkanir vegna misvægis framboðs og eftirspurnar ekki eiginlegri verðbólgu. Markaðurinn leiðréttir sjálfur þær sveiflur, eykur og dregur eftir atvikum úr framboði og verð lækkar þannig og hækkar í átt til jafnvægis. En í hálf til treikvart kommúnísku kerfi hér á landi þar sem hið opinbera kontrólerar í raun amk. helming hagkerfisins brenglast auðvitað viðtekin markaðslögmál meira og minna og það skapar síðan sífellt vitlausari hagtalnahönnun og blekkingaleik kerfisins. Hagtölur eru jú hápólitískar. 

Baldur Fjölnisson, 22.10.2008 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband