Fimmtudagur, 16. 10. 08.

Mig dreymdi að ég væri að tala við guð og hann sagði við mig sko þegar ég sagði þér að ráða sanntrúaða menn í yfirstjórn löggunnar og fangelsismála þá tók ég sérstaklega fram að þeir ættu að toppa þig að greindarvísitölu um amk. 30 stig og vera því yfir 100. Djísös, hvernig geturðu klúðrað svona elementarí hlutum. Klukkan tíu hélt ég svo fyrirlestur í Lögreglufélaginu um skipulag yfirstjórnar lögreglu og hvernig stuðla beri að því að tíu yfirmenn séu um hvern almennan lögreglumann. Þetta var helsta afrek mitt í dag en kannski mætti nefna að ég hitti amk. þrjá í dag sem eru vitlausari en ég sjálfur sem er óvænt uppörvun.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Ef að Gvuð hefur skapað þetta helvíti sem jörðin er, þá má hann eiga það. Hitt er svo annað að heimur byggður á græðgi og löglegum svikum, er ekkert annað en glæpir gegn mannkyni. Við slíkum glæpum eru þungar refsingar. Okkur er sagt að við  þær aðstæður eigum við ekki að faðmast við auðvaldið???

Rúnar Sveinbjörnsson, 16.10.2008 kl. 21:10

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hvorki guð né helvíti eru til, allavega ekki í þeirri mynd sem menn hafa presenterað þau fyrirbæri.

Viðhorf okkar til þess sem er í gangi á hverjum tíma byggist að miklu leyti á veruleikahönnun sem við fáum frá ákveðinni maskínu, sem er kostuð af hagsmunaaðilum.  Það kostar peninga að koma pólitíkusum til valda, það er ekki þannig að þeir stökkvi bara upp á sápukassa á Lækjartorgi og lýðurinn verði uppnuminn af þeirra speki og andríki við það, nei þetta snýst um peninga og auglýsingar og fótósjopp eins og önnur sölumennska. Það kostar líka peninga að halda úti auglýsingaruslpósti (sem enginn heilvita maður kallar lengur því hátíðlega nafni fjölmiðla) og ruslpósturinn verður að skila árangri. Hóra sem ekki trekkir rétt í þágu mangara síns endist eðlilega ekki lengi í bransanum. Þess vegna þarf að snúa því að kúnnanum sem hentar í það og það skiptið. Allir þurfa að lifa. Ef þú ert að harka á ruslveitu íhaldsins, afsakið ríkisins, þá hórastu náttúrlega ekki í beinni útsendingu með kostendum vinnuveitenda þinna. Það væri alltof vandræðalegt. 

Baldur Fjölnisson, 16.10.2008 kl. 22:34

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það vilja allir hafa atvinnu, það er afar skiljanlegt. Þó ekki væri nú. En atvinna felst í að selja sig og síðan verður það spurning um græðgi og - óumflýjanlega í mörgum tilvikum ákveðið hórumentalítet. Mönnum hættir jú til að yfirkeyra sjálfa sig og gleyma sér í eigin ímyndaða ágæti, sem er einhvern veginn ýtt undir af maskínunni sem er að nota þá.  Á ákveðnum tímapunkti verða síðan ákveðin tímamót í kerfi sem að miklu leyti er drifið af þessu hórumentalíteti - og hefðbundið vændi verður lögleitt, ekki síst til að slá vopnin úr höndum þeirra sem hafa verið að kvabba yfir öllu þessu keypta dóti við stjórn landsins og á ruslveitunum. Hórumentalítetið er þannig normalíserað og gert löglegt og þannig pólitískt korrekt og "normalt". Síðan rúllar þetta gjörspillta kerfi snarlega á hausinn - skiljanlega - og okkur er ætlað að koma af fjöllum yfir því. Amen og kúmen.

Baldur Fjölnisson, 16.10.2008 kl. 22:52

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það er áreiðanlega plentí markaður fyrir feitlagnar hórur þannig að ég myndi snarlega þjóðnýta þessar augljósustu, skv. framansögðu, skella á þá þokkalegri hárkollu og varalit og reyna að trekkja inn 10-20 evrur á þá meðan þeir endast. Þannig gætu þeir helst gagnast þjóðarhag. Í nafni Jesús Kr. Jósepssonar, amen.

Baldur Fjölnisson, 16.10.2008 kl. 23:00

5 Smámynd: gudni.is

Þú ert alveg ágætur

gudni.is, 17.10.2008 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 116392

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband