14.10.2008 | 18:08
Fjörbrot gjaldþrota alþjóðlegs fjármálakerfis verða æ tryllingslegri
Vandamálið stóra sem fáir ræða er að heimurinn er marg yfirveðsettur. Þannig nema skuldasamningar og afleiður og tryggingabréf kerfisins sjálfs gegn eigin hruni amk. 1200 kvadrilljónum dollara. Þessi tala lítur svona út: 1,200,000,000,000,000 og samsvarar sirka tuttugufaldri vergri framleiðslu plánetunnar. Þannig að þessar stöðugu björgunartilraunir sem við höfum séð síðasta árið hafa álíka mikið að segja og að borga þúsund kall upp í milljón króna skuld.
Um bloggið
Baldur Fjölnisson
Nýjustu færslur
- Torfi Stefáns bannaður ævilangt
- OL í skák. Landinn malaði Keníu í 9. umferð
- OL í skák: Landinn í 88. sæti eftir 8 umferðir
- Meðaljónar í skákinni
- Baggalútur - Sagan af Jesúsi
- Eitrað fyrir lýðnum?
- Óvenjulega döpur taflmennska innfæddra einkennir Reyjavíkursk...
- U.S. Rushes Coolant to Japanese Nuke Plant After Earthquake
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kjartansson
-
Björgvin Gunnarsson
-
Brynjar Jóhannsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
FreedomFries
-
Fríða Eyland
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gestur Guðjónsson
-
Gils N. Eggerz
-
Gullvagninn
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Gísli Hjálmar
-
Hagbarður
-
Halla Rut
-
Haraldur Haraldsson
-
Hilmar Kári Hallbjörnsson
-
Hlekkur
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Aðalsteinn Jónsson
-
Jón Ragnarsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Karl Tómasson
-
Kári Magnússon
-
Loopman
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Promotor Fidei
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sandra María Sigurðardóttir
-
SeeingRed
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Þórðarson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
el-Toro
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Tryggvi Hjaltason
-
TómasHa
-
Túrilla
-
Upprétti Apinn
-
gudni.is
-
haraldurhar
-
proletariat
-
Ívar Pálsson
-
Ómar Ragnarsson
-
Ónefnd
-
Óskar
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórir Kjartansson
-
Arnar Guðmundsson
-
Bara Steini
-
Birgir R.
-
Birgir Rúnar Sæmundsson
-
brahim
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bwahahaha...
-
Dingli
-
eysi
-
Gestur Kristmundsson
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Hlini Melsteð Jóngeirsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
kreppukallinn
-
Kristín Magdalena Ágústsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Neo
-
Orgar
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rauði Oktober
-
Skákfélagið Goðinn
-
Sveinn Þór Hrafnsson
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þór Ludwig Stiefel TORA
Athugasemdir
Ein kvadrilljón samsvarar þúsund bandar. trilljónum eða möo. milljón billjónum (milljörðum). Talið í ísl. krónum jafngildir kvadrilljón dollara því sirka hundrað milljón milljörðum.
Baldur Fjölnisson, 14.10.2008 kl. 18:17
Afsakið, það er erfitt að höndla stjarnfræðilegar risastærðir af þessu tagi og í upphafsinnlegginu á þetta að vera 1 komma tvær kvadrilljónir (1200 trilljónir) en annað í þessu samhengi á að vera rétt.
Baldur Fjölnisson, 14.10.2008 kl. 18:19
Verg heimsframleiðsla er núna þetta 60 trilljónir dollara og ein kvadrilljón samsvarar sem sagt þúsund trilljónum. Bókfært verð heimsins gæti hugsanlega verið 100 trilljónir plús en er reyndar sífallandi af skiljanlegum ástæðum.
Baldur Fjölnisson, 14.10.2008 kl. 18:22
Þetta eru sem ofuruppblásnar bólur ofan á öðrum bólum og helstu stjórnendur þessa dauðadæmda kerfis hafa verið önnum kafnir við það síðustu 20-30 árin að blása upp nýjar blöðrur þegar aðrar hafa sprungið. Núna eru vonlausustu blöðrurnar hlægilegar húsnæðisbólur víða um heim og ævintýraleg ríkisskuldabréfablaðra í BNA (undirstaða þess alveg fallít hagkerfis). Skuldabréf eru seld á gengi og hreyfast gengi og ávöxtunarkrafa í gagnstæðar áttir. Hátt gengi þýðir því lág ávöxtunarkrafa. Núna er gengi þessarra vonlausu pappíra (10 ára ríkisskuldabréf BNA) rétt neðan við sögulegan topp síðustu 50 ára og ávöxtunarkrafa þeirra þar af leiðandi rétt ofan við sögulegan botn ! Það er algjörlega súrrealískt með tilliti til endalausrar peninga (skulda) framleiðslu (og meðf. verðbólgu) sem við munum sjá í örvæntingarfullum tilraunum til að fylla upp í risagatið sem ég lýsti að ofan.
Baldur Fjölnisson, 14.10.2008 kl. 18:41
Baldur, ef við færum okkur til Íslands, þá eru skuldir okkar víst 12- föld þjóðarframleiðsla, annað hvort sú nýja, 15 þús. ma. eða 2007= 1300 ma. kr. Notum gömlu, þá 12x1300 ma. kr. = 15.600 milljarðar króna. Þar af bankarnir 3/4 hlutar = 11.700 ma.kr. Þarf snilling til þess að sjá að við getum aldrei samþykkt að borga þessar skuldir, þar sem þjóðarframleiðsla færi í að greiða vextina á ári?
Sama er með Bandaríkin og dæmi þitt. Enda segir Mark Faber (Doom Boom and Gloom Report), sem er í okkar hópi, eins og þú að næsta og síðasta sprengjan verði amerísk ríkisskuldabréf, þar sem afföllin muni þrefaldast fljótlega vegna ofurskuldsetningar. Bandaríska ríkið stefnir í greiðsluþrot.
1,000,000,000,000,000 (one thousand million million; 1015; SI prefix peta-) - for all short scale countries - increasingly common meaning in English language usage. One quadrillion.Ívar Pálsson, 14.10.2008 kl. 21:35
2008 þjóðarframleiðsla Íslands (áætluð) átti náttúrulega að vera 1500 milljarðar!
Ívar Pálsson, 14.10.2008 kl. 21:37
Það þarf ekki snilling og því síður til að skilja að 5% LIBOR vextir af kvadrilljón dollurum þýðir 50 trilljónir dollara sem jafngildir 80% af vergri heimsframleiðslu, sem augljóslega þýðir að kerfið er algjörlega á hausnum og það hefur ekkert að segja að reyna að henda þúsundkalli í milljón króna skuld. Þess vegna eru yfirgnæfandi líkur á því að alþjóðamarkaðir verði stöðvaðir bráðlega, verðgildi þeirra síðan fært nálægt núllinu líkt og hér, og ríkiseignir fjármálaveldisins taki síðan við leifunum. Ef þið hafið spilað matador þá vititð þið út á hvað það gengur. Einokun, miðstjórn. Það skiptir ekki öllu máli hvort ríkisvaldið yfirtekur fyrirtækin eða öfugt; niðurstaðan verður nokkurn veginn hin sama.
Baldur Fjölnisson, 14.10.2008 kl. 22:37
Síðan má ekki nefna það, en faðir minn minntist á það í sendibréfi árið 1938 (ári fyrir WWII), að stríð sé líklegasta útkoman þegar til lengdar lætur. Fyrst Bandaríkin munu ekki geta greitt skuld sína við Kínverja og arabaríkin, þá er eina leiðin "út" að nota stærsta vopnakerfi heimsins til þess að jafna sakirnar. Því miður. Best að safna Norskum krónum og að halla sér að Norðmönnum!
Ívar Pálsson, 15.10.2008 kl. 00:18
Afleiðurnar hafa afvegaleitt heiminn sbr þessa grein síðan í vor. Smá brot úr henni:
To grasp how significant this five-fold bubble increase is, let's put that $516 trillion in the context of some other domestic and international monetary data:
Ívar Pálsson, 15.10.2008 kl. 00:24
Hér er listi þeirra, sem sækja NWO samkundur Bildenberg og hvenær. Takið eftir hverjir eru þar af Íslendingum. Það ætti að vekja mönnum hroll vegna IMF, sem er af sama meiði. Bendi líka á athugasemdir mínar varðandi IMF og Lipsky hjá Ívari Pálssyni.
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_Bilderberg_attendees#Icelandonum
Jón Steinar Ragnarsson, 15.10.2008 kl. 03:52
Já takk.
Ég held að samtala allra skulda, samninga og tryggingaskjala og afleiða og framvirkra samninga sem skuldunum tengjast - sé að minnsta kosti 1200 trilljónir dollara en hvað sem því líður þá er allavega ljóst að heimurinn er margyfirveðsettur og fjármálakerfi heimsins þar af leiðandi algjörlega gjaldþrota. Pólitískar eignir fjármálakerfisins hafa lengi burðast við að ljúga sig í kringum þessa óþægilegu staðreynd með aðstoð keypts auglýsingaruslpósts sem enginn kallar lengur því hátíðlega nafni fjölmiðla en öll þessi keypta lygamaskína er hætt að virka og því hrynur þetta vonlausa keðjubréfaskím hratt þessi síðustu misseri.
Stríð og/eða meiriháttar terrorhollýwoodsjó er mjög líkleg "lausn" glæpalýðsins sem hefur komið heiminum í þessa vonlausu stöðu og raunar bendir allt til þess að það lausnaferli hafi farið af stað fyrir alvöru upp úr aldamótunum, sbr. hlægilega gagnsæ opinber terrorsjó og tryllingslega örvæntingarfullar lygaflóðbylgjur til að svíkja af stað stríð á algjörlega upplognum forsendum.
Baldur Fjölnisson, 15.10.2008 kl. 07:51
Bloomberg.com: Worldwide
13 Oct 2008 ... Libor, set by 16 banks in a survey conducted by the BBA each day in London, determines rates on $360 trillion of financial products ...
www.bloomberg.com/apps/news?pid=20601087&sid=aZHAULdQ8Mvk&refer=home -
LIBOR (millibankavextir) taka til hluta þessarra skuldafjallgarða og afleiða þeirra og bara sá hluti er upp á þetta 6-7falda verga heimsframleiðslu. LIBOR hefur skiljanlega rokið upp í seinni tíð og var í 5% um daginn enda gjaldþrotspremían án efa sívaxandi.
Baldur Fjölnisson, 15.10.2008 kl. 08:12
Ég sé reyndar núna að LIBOR hefur fallið í 360 punkta (3.6%) eftir síðasta örvæntingarp(r)ump fjármálabatterísins og pólitiskra eigna þess en til samanburðar var það 105 punktar um miðjan september og 25 punktar í janúar sl.
Baldur Fjölnisson, 15.10.2008 kl. 08:19
London interbank offered rate á þriggja mánaða dollaralán er hins vegar núna 475 punktar eða heilum 325 punktum hærra en stýrivextir seðlabanka BNA ! Ekki aðeins hér heldur líka á heimsvísu hefur ófreskjan vaxið öllum opinberum kerfum langt yfir höfuð og æðir stjórnlaust út í eigin tortímingu eins og blasað hefur við.
Baldur Fjölnisson, 15.10.2008 kl. 08:27
Mér hefði fundist við hæfi að fréttamenn hefðu tekið af sér beltin sín og rétt x bankastjóra/um þau og segja þeim að gyrða sig vel með sultarólinni frægu sem x aðili vildi að íslendingar gyrtu sig með fyrir x árum síðan.. Þeir eru sko heldur betur búnir að vera illa gyrtit í mörg ár..eins og sannast hefur...með allt niður um sig...

Agný, 15.10.2008 kl. 13:42
Þeir eru með allt niður um sig úti á túni og núna rammvilltir í hlaðvarpanum.
Baldur Fjölnisson, 15.10.2008 kl. 16:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.