Draslið hér sett á hausinn og á ábyrgð skattgreiðenda ÁÐUR en kemur að uppgjöri okkar undirmálslána

Það hefur öllum og hundinum þeirra líka verið lánað fyrir öllum mögulegum og ómögulegum hlutum og líka til að koma upp hundafatahönnun og hundasálfræði og gott ef hundaskyggnilýsingar skaffa ekki einhverjum atvinnu. Þetta er þjónustuhagkerfi úr helvíti og dæmt til að hrynja eins og spilaborg þegar dregur saman og menn þurfa að verja fjármunum sínum í nauðsynjar fyrst og fremst.

Enginn ræðir raunverulega stöðu þessarra bankaþrotabúa sem pólitískar eignir fjármálaveldisins hafa nauðgað inn á skattgreiðendur. Hvers virði eru eignir þessarra þrotabúa í raun. Hvað kemur til með að falla á skattgreiðendur þegar innlend undirmálalánakrísa skellur á okkur?  Hvað verður um alla bílana og íbúðirnar? Hrynur kannski húsnæðismarkaðurinn um 80%? Það er búið að byggja hér til næstu ára og útlendingar flykkjast úr landi. Það hlýtur að þýða massíft offramboð á húsnæði. Þetta eru aktúel málefni en maður sér þau ekki rædd. Þess í stað er hjakkað á einhverju þjóðernis tilfinningarúnki og trúarnöttarar og vandamálafræðingar sjá sér líka leik á borði. Við eigum víst að halda ró okkar til þess að það sé friður til að rýja okkur algjörlega inn að skyrtunni. Amen og kúmen.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þetta eru nú ekki beint rakettuvísindi. Draslið hrundi vegna þess að það gat ekki staðist til lengdar. Það var alltaf fyrirsjáanlegt. Allar j-kúrfur hrynja á endanum með braki og brestum. Einstaka maður varaði við þessu en það hafði lítið að segja gegn mjög stórum keyptum hóruher. Síðan segir pólitískur glæpalýður okkur að pæla alls ekki í hinu liðna (læra af fyrri kollsteypum annarra af þessu tagi) heldur aðeins horfa fram á veginn. Og því fer sem fer. Þessi glæpalýður er í æðstu stöðum og hefur því defínerandi áhrif á þjóðfélagið eins og gefur að skilja.

Baldur Fjölnisson, 10.10.2008 kl. 21:27

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Fundið á blogginu og hvað með kellinguna úr Eyjum hvers ráðgjafi er einn drykkjufélaga Stalíns?

"""Gaman væri að vita hver hefði selt hlut í Ladsbankanum fyrir 37 milljarða eða svo einum eða tveimur tímum áður en Fjármálaeftirlitið tók við honum? Þessi sala er kölluð "dularfull" í ríkisfjölmiðlum. Hver átti svo verðmætan hlut? og hver var svo óheppinn að kaupa?

 Þessi frétt klingir bjöllum: er verið að skjóta miklum eignum undan í því kraðaki þrota sem gengur yfir? Hvers vegna var Landsbankinn (og hinir þá líka) ekki lýstur gjaldþrota? Með því að gera það ekki er ekki hægt að taka upp neina gerninga með eignir bankans sl. 18 mánuði eins og annars hefði verið hægt. Þrotabúið hefði getað fengið Fjármálaeftirlitinu innlenda hlutann til rekstrar og bústjóri reynt að fá sem mest upp í kröfur, t.d. í Bretlandi.

Spyr sá sem ekki veit?

hágé"""

 

Baldur Fjölnisson, 10.10.2008 kl. 22:15

3 identicon

Baldur, getur þú ekki stofnað ngo grúppuna "Endurskoðun almennings", farið og fundið hvort Landsbankinn sjálfur var látinn kaupa þessa 37 milljarða, og þá hver bar ábyrgð á slíkum gjörningi? 

Við þurfum svo nauðsynlega einhverja gagnrýna stofnun eða sjálfboðaliðahóp, til að gæta hagsmuna okkar. 

Fjölmiðlar ljúga bara eins og aldrei fyrr, og það er veisla í náhirðinni.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 116395

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband