Helsti gallinn við boðaðar aðgerðir er að ríkissjóður er þegar algjörlega gjaldþrota

Í lok 2. ársfjórðungs var erlend staða hans neikvæð um 500 milljarða króna og varla hefur hún skánað síðan nema síður væri. Það er því ekki verið að bjóða upp á neitt sérstakt, bara að reyna að væla sig einhvern veginn áfram og framar öllu að halda völdum einhvern veginn.

http://sedlabanki.is/?pageid=444&itemid=684d7b4a-7b6d-4a49-8b0c-f62d792fd59a&nextday=4&nextmonth=12

Þannig mun þessi gjörónýta ríkisstjórn halda áfram að hámarka tjón almennings og tryggja áfram að krónan verði að engu. Fyrir nokkrum dögum fullvissaði fjármálaeftirlitið landsmenn enn einu sinni um að bankakerfið stæðist einhver merkileg álagspróf og síðan rúllar þetta allt snarlega á hausinn. Síðan á þetta augljóslega heilabilaða batterí að fá eins konar alræðisvald og ber sú ráðstöfun áfram vott um brjálsemi og heimsku í æðstu stöðum. Skárra hefði verið að þora að taka á hinu augljósa: landið hefur verið sett á hausinn við höfum tepað okkar efnahagslega sjálfstæði og skárra er að setja þrotabúið undir stjórn erlendra stofnana en að láta rugludalla í ríkisstjórninni sökkva skútunni endanlega. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Kannski er Villi Bjarna ekki með internetið eða kannski kann hann ekki að opna excel skjal seðlabankans þar sem glögglega kemur fram að ríkissjóður er gjaldþrota. En hann er allavega með þessa hlægilegu mýtu í sjónvarpinu að ríkissjóður sé nánast skuldlaus. Þetta eru sorglegar blekkingar og munu aðeins gera illt verra enda hefna lygar og óhreinskilni sín alltaf á endanum.

Baldur Fjölnisson, 6.10.2008 kl. 19:09

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hin raunverulega staða hefur að sjálfsögðu komið fram í sjálfum gjaldmiðlinum sem hefur gjörsamlega hrunið - þrátt fyrir himinháa vexti, meðal þeirra hæstu sem þekkjast hjá öðrum ávaxtalýðveldum.

Fyrir ári var gengisvísitalan í 115 stigum, núna stendur hún í 230, það er hækkun upp á 100%. Þúsundir íbúða með lán í erlendum gjaldeyri hafa þannig gufað upp auk bíla og annars varnings. Gífurleg verðbólga er í pípunum vegna þessa hrikalega gengisfalls og enn fleiri íbúðir munu gufa upp vegna áhrifa hennar enda eru vitfirringar enn með verðtryggð lán hér á landi.

Ábyrgðarlausir pólitíkusar þykjast síðan ætla að bjarga þessu öllu með gjaldþrota ríkissjóði.  En markaðurinn veit betur og því má búast við enn frekari hruni krónunnar. Ég geri fastlega ráð fyrir að hún hrynji um að minnsta kosti 25% út þessa viku.

Baldur Fjölnisson, 6.10.2008 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband