Toppmaður í Carnegie segir þetta búið spil fyrir íslensku bankana

Vísir, 03. okt. 2008 16:01

mynd

Herleif Håvik forstöðumaður vaxta-og lánadeildar Carnegie bankans segir í samtali við viðskiptavefinn E24.no að þetta sé búið spil fyrir íslensku bankana. Vísar hann þar í skuldatryggingarálagið sem rokið hefur upp í 6.000 punkta í dag hjá Kaupþingi og 5.500 hjá Landsbankanum.

"Þetta lítur mjög alvarlega út og í raun er markaðurinn að segja að þeir séu búnir að vera," segir Håvik sem þar að auki bendir á að þrátt fyrir yfirtöku íslenska ríkisins á Glitni hafi ríkið ekki sett fram neinar tryggingar fyrir skuldum Glitnis.

Håvik segir að íslenska ríkið sé ekki nógu öflugt til að bjarga bönkunum á Íslandi. Bara efnahagsreikningurinn hjá Glitni sé um 2,5 föld landsframleiðsla Íslands.

Håvik segir að tvær leiðir séu til í stöðunni. Annarsvegar verði einn eða fleiri af bönkunum keyptir af erlendum bönkum. Hinsvegar verði þeir þjóðnýttir í einu eða öðru formi. En þá lenda þeir í vandræðum með gjaldeyri. Lausnin á því kynni að vera að láta erlendu skuldirnar sigla sinn sjó og bjarga innistæðunum og íslensku skuldunum. Við það myndi hinsvegar gengi krónunnar hrapa enn meir en orðið er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

En hvað heldur þú Baldur...

Er þetta þá búið ? hungurmorð og dauði framundan ? 

Brynjar Jóhannsson, 3.10.2008 kl. 19:42

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það er risavaxið uppgjör framundan og ríkissjóður Íslands lýstur opinberlega gjaldþrota. Lýðurinn sem hefur verið þar við stjórn hefur vísvitandi frestað þeirri óumflýjanlegu aðgerð til að hámarka tjón landsmanna og hefur það speglast ma. í algjöru hruni gjaldmiðilsins. Ég geri ráð fyrir að Landsbankinn og Kaupþing fari á hausinn fljótlega og í framhaldi af því munu falla á ríkissjóð geigvænlegar fjárhæðir vegna Glitnis, félags sem vitfirringar settu undir ríkissjóð til að gulltryggja endanlega gjaldþrot.

Þeir hirða lífeyrissjóðina, þeir láta pólitískar eignir sínar stela því öllu fyrir sig. Þeir hafa stolið landinu í rólegheitunum og flutt það út og eignirnar hafa á meðan svæft ykkur og munu gera áfram. Góðar stundir. 

Baldur Fjölnisson, 3.10.2008 kl. 20:02

3 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Ítrekað hef ég spurt á fundum með vitringunum frá lífeyrissjóðunum. Hvað þegar stóra lífeyriskynslóð eftirstríðsáranna fer að taka út sinn lífeyrir, hvað þá? Svarið er að því mig minnir hagvöxtur. Þar sem við eftirstríðskynslóðin, 68kynslóðin eða kótelettukarlarnir erum enn ekki orðnir sjötugir teljast lífeyrissjóðirnir okkar skyndilega heldasta bjargráð nánustu framtíðarnar. 10% af mínu streði var fyrir útrásina. Frétts hefur að einn FL gúrúinn hafi það víst gott í London, vissulega ekki puðað einskins.

Rúnar Sveinbjörnsson, 3.10.2008 kl. 20:27

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það hefur legið í loftinu í nokkrar vikur einhvers konar stórt krakk á fjármálasviðinu í kringum 7. okt. og hef ég verið að minnast á það nokkrum sinnum frá því að þetta dúkkaði upp. En þetta virðist ætla að verða nær okkur hérna á klakanum en mig grunaði, eða allavega katalísatorinn að þessu allsherjar krakki. Innihaldslausa glamrið í Geir Haarde og smjörklípuæði sem hefur runnið á Stalín D. Oddsson og náhirð hans virðist benda sterklega til að dagsetningin ætli að standast. Efnahagslegt sjálfstæði okkar er fyrir löngu farið út um gluggann og búið að undirbúa mjög svo skipulega að hirða draslið fyrir slikk. Endataflið er framundan. 

Baldur Fjölnisson, 3.10.2008 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband