Flokkseigendafélag íhaldsins hleypti hundunum út um allt tún

Hvernig var þetta nú aftur ... Benedikt og Einar Sveinssynir, stóreigendur íhaldsins og Dabba og Geira voru þarna í Íslandsbanka koppar innarlega í búri en hrökkluðust á brott þegar inn komu Karl Wernersson, Jón Ásgeir og Þorsteinn Már. Þetta minnir mig að hafi verið svo. Síðan er snötunum sigað og þeir eru illa vandir og sennilega ekki með réttu ráði af náttúrunnar hendi og trylla þeir allan fénaðinn eins og hann leggur sig og skemma hann eins og sjá má.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Dabbi var grátandi um áramótin síðustu útaf einhverju vesalings fólki sem hefði tapað á hlutabréfabraski og skömmu síðar fréttist af vandræðum aumingja Kidda í Skeljungi. Þetta hefur vissulega verið hræðilegt. Og nú djöflast hann eins og óður maður við að reyna að redda einhverjum risaþrotabúum flokkseigendafélagsins. Hahahahaha. Síðan hefur þingflokkur íhaldsins í gegnum tíðina skiljanlega orðið heldur vitlausari en leiðtoginn og krónprinsinn, sem aldrei átti að taka við því Dabbi ætlaði að ríkja forever, er greinilega alveg tómur og fjármálaráðherrann er klínískt nautheimskur. Það laðast ávallt saman sem deilir sameiginlegum gildum, hugmyndafræði, viðhorfum og vinnubrögðum og fáfræði, heimska og trúgirni og eftir atvikum geðveilur eru því líklega límið sem heldur saman þessarri dæmalausu ríkisstjórn. Amen og kúmen.

Baldur Fjölnisson, 30.9.2008 kl. 20:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband