Fífl (sem hálfvitar kóa með og bakka upp) á framfæri skattgreiðenda

"""...Nýlega var haft eftir frægum Hollywood-leikara, að eitt hefði hann lært af lífinu og það væri að treysta þeim aldrei, sem teldi sig hafa einkarétt á því að hafa Guð í liði með sér.

Þessi ummæli eru sprottin af deilum í Bandaríkjunum um það, hvort Bush sé með hernaðarlegan messíasar-komplex en Ralph Nader, einn mótframbjóðenda Bush í forsetakosningunum, komst þannig að orði: „Tölum um aðskilnað ríkis og kirkju: Enginn slíkur aðskilnaður er til í heilabúi Bush og það er ákaflega óþægilegt að búa við það.“

Óþægindin vegna þessa virðast teygja sig hingað til lands ef marka má þessi orð, sem birtust nýlega í forystugrein íslensks dagblaðs:

„Hér á landi og víðast hvar í Evrópu utan Bretlands eru ofsatrúarmenn taldir vera sérvitringar, sem ekki séu nothæfir til stjórnmála. Ofsatrúarmenn á jaðri geðveikinnar eru hins vegar ekki aðeins viðurkenndir stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, heldur sitja beinlínis við stjórnvölinn.

Vandamál Íslands er hið sama og vandamál alls mannkyns um þessar mundir, hvernig eigi að haga seglum eftir vindum er blása frá heimsveldi, sem rambar um eins og dauðadrukkið sé.“[2]

Mér þykir líklegt, að höfundur þessara orða setji Bretland í sérstakan bás meðal Evrópulanda, vegna þess að sagt var frá því, að þeir hefðu beðið saman í Camp David Bush og Tony Blair, forsætisráðherra Breta.

Ég minnist þess úr sögutímum hjá Ólafi Hanssyni í Menntaskólanum í Reykjavík, að hann lýsti því þannig fyrir okkur, að þeir, sem væru haldnir messíasar-komplexi teldu sig þess umkomna að frelsa og umbreyta heiminum á eigin forsendum, allir yrðu að lúta þeim og vilja þeirra, þeir þyrftu ekki að leggja bænarefni fyrir neinn. Hvernig á að bregðast við, ef það er til marks um að vera haldinn þessum komplexi, að menn biðji um leiðsögn Guðs, jafnvel þótt þeir séu forseti Bandaríkjanna eða forsætisráðherra Bretlands? Aikman segir í bók sinni um Bush, að hann hafi aldrei sagt, að Guð hafi sagt sér að fara í stríð. Hann hafi verið ákaflega varkár í orðum sínum.

En hvert stefnir, ef afsiðunarkrafa vestrænna þjóðfélaga er á þann veg, að þeir, sem taka þátt í stjórnmálastarfi mega ekki játa trú sína opinberlega. Þeim sé bannað að viðurkenna, að við töku erfiðra ákvarðana, leiti þeir styrks hjá þeim, sem öllu ræður.

Mér er spurn: Hver er sá hér meðal okkar að hann telji sig þess umkominn að taka allar stærstu ákvarðanir lífsins án þess að eiga nokkra stund með Drottni sér til hjálpar? Er nokkur hér sem telur sig svo viðbúinn að mæta hverju sem vera skal, að Drottinn hefði þar engu við að bæta sem máli skipti og því til lítils að ráðslagast sérstaklega við hann umfram aðra?

Hitt á að sjálfsögðu við um stjórnmálamenn eins og aðra, sem Jesús sagði um bænina: En nær þú biðst fyrir, skaltu ganga inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja föður þinn, sem er í leynum. Faðir þinn, sem sér í leynum, mun umbuna þér.

Ég þarf ekki að segja neinum hér, hvor þeirra gerði betri för og fór réttlættur heim, faríseiinn sem barði sér á brjóst og auglýsti guðhræðslu sína fyrir öllum sem heyra vildu og sjálfsagt fleirum, eða sá sem stóð álengdar, fann til misgjörða sinna og bað þess eins að Guð yrði sér syndugum líknsamur.

Hvað sem öllu þessu líður, er of langt gengið, ef stjórnmálamenn, sem játa trú sína á Jesúm Krist opinberlega, eru taldir „ofsatrúarmenn á jaðri geðveikinnar.“ ..."""

http://www.bjorn.is/greinar/nr/2750

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég veit ekki... klárlega er það ekki traustvekjandi ef maður sem heldur við stjórnvölin biðji loftið um aðstoð, enn verra er ef loftið svarar, þá eiga menn að segja af sér :)
Í trúmálum eins og öðru er örfín lína sem skilur á milli geðveikinnar....

Ég persónulega segi max við sjálfan mig: Break a leg

DoctorE (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 21:06

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Til að komast á þing fyrir íhaldið þarftu beisíkallí að fókúsera á einhverja strumpa í fríkirkjusöfnuðinum og fá atkvæði frá þeim í prófkjöri en síðan kostar þetta ákveðið og lögreglan verður meira og minna óstarfhæf vegna hálfvitaháttar og ruglanda í æðstu stöðum. Amen og kúmen.

Baldur Fjölnisson, 25.9.2008 kl. 21:45

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Sjáið þið ekki þessa helv. hálfvita fyrir ykkur við morgunbænirnar í löggumannastöðinni, hahahahahaha.

Baldur Fjölnisson, 26.9.2008 kl. 13:46

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Það á að ríkja trúfrelsi her á landi,en af hverju er ekki aðskilnaður Ríkis og Kirkju gerður alveg ,,og kirkjumál tekin ut af Politikini ,ennþá er Kirkju og Dómsmalaráðherra með þetta embætti/En þetta að mörgu góð grein/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 26.9.2008 kl. 15:27

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það á að vera trúfrelsi og menn mega að sjálfsögðu trúa á það sem þeim sýnist og stofna klúbba um sinn átrúnað en slíkt á að vera á þeirra eigin kostnað. Það er forkastanlegt að skattgreiðendur standi undir slíku og hneyksnanleg sóun að vera með risastórar atvinnuleysisgeymslur upp á milljarða í sambandi við einhverjar framandi þjóðsögur og hindurvitni og aðrar álíka kellingabækur. Stjórnmálamenn sem segjast trúa á einhverja ósýnilega og óskýranlega galdrakalla og vera í reglulegu samráði við þá (raddir í eigin haus) þurfa strax að segja af sér.

Baldur Fjölnisson, 26.9.2008 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband