Líklegt að dagvistun seðlabankans hlaupi brátt á aukafund og hækki vexti til að reyna að hægja á hruni krónunnar

Þetta er löngu komið á mjög alvarlegt stig enda færir gengisfelling niður kaupmátt landsins gagnvart útlöndum og krónan hefur td. hrunið um 62% gagnvart evrunni síðan í nóvember sl. og evran er núna að ryðjast upp úr enn einum sögulega toppnum gagnvart krónunni. Það virðist engin fyrirstaða vera. Til að gera illt verra er síðan seðlabankastjóranum hleypt í ruslveitu með sitt blaður og hann þannig látinn rakka niður trúverðugleika bankans. Það er ekkert annað en skipulögð skemmdarstarfsemi. Hvað gera þeir næst? Senda þeir kannski Halldór Blöndal, formann bankaráðs seðlabankans, í næsta drottningarviðtal? Hahahahaha.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Mér líst nú betur á Timbuktu í því sambandi.

En það er greinilega afar alvarleg staða í efnahags- og peningamálum þjóðarinnar og mjög svo greinilegt að algjörlega óhæfum mönnum hefur verið troðið þar í toppstöður. Hvers vegna? Það þarf að rannsaka. Gjörónýtt lið í stjórnunarstöðum er líklegt til að eyðileggja trúverðugleika hverrar stofnunar, það segir sig sjálft.

Baldur Fjölnisson, 23.9.2008 kl. 10:09

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessir apaheilar (Davíð, Halldór Blöndal og virðist vera allt gengið í Seðlabankanum) virðast ekki vita neitt (eða minna en ekki neitt um hagfræði og efnahagsmál) það er svo einfalt að verðbólgan hefur að mestu orðið til vegna kostnaðarverðshækkana, sem kemur stýrivöxtum ekkert við, enda sést það að þetta brölt hryðjuverkamannanna í Seðlabankanum með stýrivextina, undanfarna mánuði og ár, hefur ekkert haft að segja til lækkunar á verðbólgunni, ríkisstjórnin þarf einfaldlega að finna upp á aðferðum til að draga á annan hátt úr neyslu áður en atvinnulífinu og almenningi "blæðir út" og landið fer endanlega á hausinn vegna mistaka "hryðjuverkamannanna" í Seðlabankanum.  Papey er yndisleg náttúruperla og engin ástæða til að menga hana með hvaða rusli sem er en kannski væri ráð að koma þeim fyrir á Kolbeinsey, þar er lítið pláss og þeir yrðu að berjast fyrir sínum stað, þeir sem tapa lenda í sjónum.

Jóhann Elíasson, 25.9.2008 kl. 08:59

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Heimska er ólæknandi og heilaskemmdir lagast heldur ekki með aldrinum og förgunarúrræði ónýtra pólitíkusa hafa lengi verið í algjörum ólestri. Þetta er ótrúleg helv. vitleysa. Hvernig dettur þessum dvergastrumpum í hug að úthúða bönkunum sem eru sirka 50 sinnum stærri en þeir ? Það bregst ekki að þessir jólasveinar Geir og Davíð bulla einhverja vitleysu í ruslveitunum og krónan tekur strax dýfu. Það er engu líkara en að þessir menn séu alveg sneyddir allri veruleikaskynjun og haldi bara að heimurinn sé að verða til í fyrsta skipti hvern morgun sem þeir vakna. Bullið í þeim hefur verið fyrirtaks gagnvísir misserum saman en samt halda þeir áfram.

Baldur Fjölnisson, 25.9.2008 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband