Hrun krónunnar: Vaxtahækkun líkleg hjá Seðlabanka hinn 11. sept.

Gjaldeyrisforði bankans hrundi úr 219 milljörðum í 138 milljarða milli 1. og 2. ársfj. og guð má vita hvernig staðan verður í lok 3. ársfj. Kannski er hún núll núna. Erlend staða ríkissjóðs versnaði milli ársfjórðunga um 173 milljarða. Samanlagt versnaði því erlend staða ríkissjóðs og seðlabanka um litla 254 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Þar sem um gjörsamlega gjaldþrota batterí er að ræða er borin von að það geti slegið nein lán að ráði og því virðist eina úrræðið vera að hækka vexti. Líkt og í vor hérna á blogginu geri ég ráð fyrir að stýrivextir seðlabankans verði í 18-20% í árslok og hugsanlega í allt að 25% næsta vor. Annað sé ég ekki amk. fresta gengishruni krónunnar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessir "hryðjuverkamenn" í Seðlabankanum virðast ekki ennþá vera búnir að átta sig á því að þessar "stýrivaxtahækkanir" þeirra hafa ekkert gert annað en að kynda enn meira undir og örva verðbólguna hingað til.  Hvers vegna ætti að verða breyting þar á?

Jóhann Elíasson, 9.9.2008 kl. 13:47

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ég held að það sé rétt hjá þér að vissu leyti. Vaxtagjöld eru mjög svo raunverulegur kostnaður í rekstri og fara skiljanlega eins og annar rekstrarkostnaður út í verð þess sem viðkomandi rekstur selur. Þannig fóðra vaxtahækkanirnar vissulega verðbólguna að hluta. Það er víst peningamálalegur vítahringur úr helvíti.

Það er greinilega rosaleg paník í gangi í vistunarúrræðunum þríátta við Arnarhól og peningum dælt af offorsi miklu út í hagkerfið til að halda heldur veiklulegu atvinnulífi gangandi. Almenningur er mjög skuldugur og margir eiga ekki baun í bala í húsum eða bílum eða yfirleitt einu eða neinu. Þetta er mjög svo viðkvæm staða. Atvinnureksturinn er líka skuldum hlaðinn. Bankarnir hafa síðan ruglað launakerfi landsins og spennt upp laun. Í þessarri stöðu myndi ég lækka öll laun yfir 200 þús. um þetta 25%, reka amk. 10 þús. ríkisstarfsmenn í störf sem losna þegar útlendingar flýta sér á brott,  hækka skattleysismörk um nokkra tugi þúsunda (sem jafngildi að meðaltali 25-30% skattalækkun), reka álþingi og ríkisstjórn, selja bönkunum Seðlabankann og Arnarhvál.

Baldur Fjölnisson, 9.9.2008 kl. 14:25

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ég vil rífa álþingishúsið og selja grjótið á Ebay og jafnframt rífa alla þessa hræðilegu verkamannabústaði og byrja að rífa Breiðholtið og stefna að því að þessar hryllilegu blokkir verði allar horfnar innan segjum 5-7 ára og eitthvað skárra komið í staðinn. Allt þetta niðurrif mun skapa mikla atvinnu og mottóið verður Uppbyggingin í Reykjavík - Gerum Dabba að sendiherra í Írak.

Baldur Fjölnisson, 9.9.2008 kl. 17:17

4 identicon

Ég spáði fyrir löngu að þeir fari með vextina í 100%.

Sjáum bara til. Það getur allt gerst.

Langvarandi notkun sterkra geðlyfja, kvikasilfur frá tannfyllingum, ásamt farsímanotkun geta brenglað veruleikaskyn greindustu manna, hvað þá hinna.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 17:22

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Að sjálfsögðu er best að reka þessa jólasveina alla þríátta við Arnarhól áður en vitleysingar á álþingi láta þá tapa hundruðum milljarða við að reyna að proppa upp krónuna. Fimmtánhundruð stiga menn hafa ekkert að gera í tafl við stórmeistara á gjaldeyrismarkaðnum og verður bara valtað yfir þá.

Baldur Fjölnisson, 9.9.2008 kl. 17:25

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Jamm, þetta er efnafræði- og eðlisfræðilegt vandamál ekki spurning. Ekki bætir síðan úr skák meðfædd heimska í æðstu stöðum.

Baldur Fjölnisson, 9.9.2008 kl. 17:27

7 identicon

Kvikasilfur er frumefni með efnatáknið Hg (dregið af gríska orðinu hydragyros, eða vökvakennt silfur) og er númer 80 í lotukerfinu. ..... Kvikasilfur er baneitrað, heilaskaddandi efni og hafa efasemdarmenn unnið að algjöru banni á því.

Helstu not af kvikasilfri eru í rannsóknatæki, til dæmis hitamæla, í amalgam í tennur og í skordýraeitur. Þar sem kvikasilfur er baneitrað forðast menn heldur að nota það nema nauðsyn beri til.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 18:59

8 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Já og það eða afleiða þess (thimerosal) hefur lengi verið notað í bóluefni, til að bóluefnið geymist betur. Þetta er vissulega hræðilegt. Mikilvægustu menn landsins (amk. að eigin áliti) hafa verið á konstant sprautum forever. Bæði reglulegum flensusprautum og svo óteljandi sprautum gegn hvers kyns framandi sjúkdómum vegna endalauss ráps viðkomandi um heiminn.

Baldur Fjölnisson, 10.9.2008 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband