Nýjar rannsóknir sýna að djöflinum var hent út úr himnaríki vegna þess að hann var of kúl fyrir samkvæmið

Það eru víst eitthvað tíu þúsund (varlega áætlað) útgáfur af þessum hefðbundna gudda og ótal trúarbrögð um hann og kristnin er klofin í ótal brotabrot í túlkun á honum og þessi ruglandi hefur farið versnandi með hverri öldinni sem hefur liðið. Hvers vegna í ósköpunum hefur Staðlaráð Íslands ekki fyrir löngu tekið í taumana og reynt að koma böndum á þetta. Það er álíka og að reyna að smala saman 30 köttum að reyna að henda reiður á öllum þessum trúarruglanda sem hleypur endalaust út og suður og norður og niður.

En merkilegt nokk er nokkuð almennur skilningur á djöflinum.  Öll þessi trúarbrotabrot virðast vera nokkuð sammála í skilningi sínum á honum. Það bendir því allt til þess að hann sé í rauninni rétti guddinn en einhverjar ruglaðar klíkur þarna í himnaríki hafi steypt honum af stóli í þágu sinna hagsmuna. Þar sem um tútal lið er að ræða sem stýrist algjörlega af eigin hagsmunum (sem augljóslega speglast glögglega í ýmsum nafntoguðum siðvillingum á jörðinni sem hafa skrifað upp á trúardelluna og flotið áfram á henni) hefur þetta vonlausa konsept sem sagt ruglast út í frumeindir sínar. En eftir stendur djöfullinn í fínum málum og hlær dátt að vitleysunni. Devil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er margt sem hallar að því að lúsifer sé guð elítunnar, og það kæmi mér ekki á óvart að þeir hafi skapað hinn kristna guð, ásamt ýmsum öðrum, til að almenningur fái eitthvað barnalegt til að elta og láta stjórnast af.  Að vísu er kristnin einna verst af þessum tilbúnu trúarbrögðum, því ef hinn kristni maður raunverulega hegðar sér sem kristinn (sem er afar erfitt, nánast ómögulegt, sennilega af "tilviljun"), þá lætur hann ekki að stjórn og líður ekki illsku.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 12:44

2 identicon

Það má færa rök fyrir þvi að sá sem kallast djöfullinn sé faktískt guð sjálfur... og hann er fangi hins raunverulega djöfuls...

En þetta eru náttúrulega bara ævintýr dauðans

DoctorE (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 10:41

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ég er með trúarbragðafræðing við hendina og ber þessar hugmyndir allar reglulega undir hana og hefur hún ekki enn fundið minnstu holu á þeim.

Það eru helstu og augljósustu vandamálin með þennan ágæta guð eða guði:

Ef til eru guð eða guðir, sem þá ættu eðli málsins samkvæmt að vera færir um að gefa tilvist sína mönnum til kynna, þá ættu menn að vera sammála um fjölda téðra guða. En þeir eru það ekki og það eru ótal guðir og klofningsbrot frá þeim og ekki minnsta samræmi eða samkomulag um þessar verur sem mjög sterklega bendir til þess að þær séu hreinlega ekki til, amk. ekki samkvæmt túlkunum manna á þeim.  Peningamaskínur á vegum skattgreiðenda í kringum spekúlasjónir um einhverja ósýnilega og óskýranlega guði ber því að meðhöndla sem hverja aðra fjárplógsstarfsemi og fjársvik og stöðva þær. Jafnframt ber að senda stjórnmálamenn, sem trúa á verur þessar og eru jafnvel á tali við þær í eigin kolli að eigin sögn, þegar í stað í geðrannsókn eða aðra viðeigandi endurhæfingu.

Enginn hefur sannanlega orðið var við guði þessa og ber að hafa í huga að þó einhverjir sanntrúaðir segist vera í reglulegu sambandi við þá verður það bara orðrómur þegar þeir segja einhverjum öðrum frá því. Guðirnir eru þá í skársta falli heldur léleg kjaftasaga og fer þá ekki hjá því að birtist glögglega líkingarnar við önnur nígeríusvindl og fjársvik sem byggjast jú einmitt á kjaftasögum og orðrómi um upplognahluti.

Nú, vandræðagangurinn með guðina kristallast síðan mjög svo glögglega í þessum furðulega ruglanda með fulltrúa hins góða og illa það sem góði guðinn er klofinn í ótal frumeindir og ótal trúarbrögð og óteljandi kirkjudeildir sem allar telja sig vera með rétta konseptið (sem augljóslega þýðir að engin þeirra er með ####### í bala hvað góða guddann snertir) en merkilegt nokk er allgóður staðall um vonda guðinn, djöfulinn allavega eru ekki 25,000 útgáfur af honum svo mikið er víst. Þannig að þið sjáið að þetta trúarbragðarugl meikar ekki nokkurn helv. sens nema sem fjársvik og atvinnuleysisgeymsla og lífsviðurværi fyrir landeyður. Í guðs friði. 

Baldur Fjölnisson, 1.9.2008 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 116397

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband