"Hægri" og "vinstri" hafa verið að renna saman í einhvers konar póstmódernískan fasisma með raðlygna bílasala við stjórnvölinn

Þetta hefur auðvitað ekki gengið yfir á einni nóttu heldur hefur verið um langa þróun að ræða en hún hefur hert mjög mikið á sér eftir hollywoodsjóið 11. sept. 2001 og aðra geigvænlega svikastarfsemi bæði á stjórnmála- og fjármálasviði og tröllvaxnar stríðslygar sem við höfum séð. Valdaelítan sem hannaði upphaflega allar þessar stjórnmálastefnur sem hafa síðan runnið saman, virðist hafa misst tökin á atburðarásinni og eignir hennar í pólitík og fjármálum því orðið að grípa til sífellt örvæntingarfyllri aðgerða.

Fyrr á árum töluðu hérlendir fasistar mikið um nauðsyn þess að koma hér á tveggja flokka kerfi í anda einflokksins í BNA og Bretlandi en flestir sáu í gegnum þann áróður og því hefur hér þróast óbeinn einflokkur ef svo má segja það er íhaldið hefur síðustu áratugina notað hinar og þessar hækjurnar til að skapa þennan einflokk - sem endalaust er við völd. Kranastjórnmálakerfi af þessu tagi skilar síðan sífellt þynnri þingmönnum og sífellt lélegri bílasölum til valda og það höfum við séð bæði hér og þar. Og forheimskunarhraðinn þarna uppi hefur sífellt aukist. Við vorum með Dabba sem leiðtoga og pravda og ruslveita ríkisins sáu um að heilaþvo lýðinn en síðan brast það einokunarkerfi og pólitísk tilvera Dabba þar með og eftir að hann náði endanlegum pólitískum botni við að flytja skýrslu Bush um utanríkismál fyrir tómu álþingi árið 2005 sneri hann sér að því að gjöreyða trúverðugleika seðlabankans ásamt Halldóri Blöndal, Hannesi Hólmsteini og öðrum snillingum frá hægri og vinstri. 

Nú, Halldór Ásgrímsson komst loksins í stólinn langþráða þarna árið 2004 og hélt að hann yrði þá sjálfkrafa hinn mikli leiðtogi sem gæti mótað skoðanir almennings með því að mæta í ruslveitu ríkisins og kom algjör veruleikafirring hans strax fram eftir nokkrar vikur þegar skall á verkfall grunnskólakennara. Ríkið lagði fram miðlunartillögu í deilunni og Halldór sagðist telja víst að kennararnir myndu samþykkja hana en að sjálfsögðu var hún kolfelld með 92% atkvæða.Þanni að hann var frá byrjun aðeins nothæfur sem gagnvísir og varð að lokum að flýja land og starfar núna sem ruslafata hjá norðurlandaráði.

Þá er það gamli góði Geir. Hann á víst að vera hagfræðingur að mennt en aldrei hefur orðið vart við að hann hafi minnsta vit á hagfræði. Sennilega hefur hann fengið gráðuna gefins á vegum  bandarísk-íslenska rugludallafélagsins. Repúblikanahluti bandaríska einflokksins er jú systurflokkur íhaldsins þó helstu ljós íhaldsins hafi reyndar hætt að monta sig af því fyrir nokkru. Hvað um það; maðurinn er gjörsamlega innihaldslaus og þarf að vera í starfi sem krefst ekki mikilla vitsmuna eða tjáningar. Hann væri vafalaust fyrirtaks skrifstofustjóri í einhverju ráðuneytinu. Mér sýnist hann hafa svok. steypurass, hann hafi sem sagt mjög mikið þol í setur og þar með í að sortera einhvera pappíra og þegja á meðan - styrkleiki hans sé því frekar í afturendanum en höfðinu. Meira síðar. Í guðs friði. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 116381

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband