17.7.2008 | 14:09
Stríðsglæpamönnum og öðrum síkópötum í æðstu stöðum á vesturlöndum er góðu heilli að takast að ganga af NATO dauðu
NATO í tilvistarkreppu - Ræður ímyndarsérfræðing frá Coke
Stjórnarherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) hafa ákveðið að ráðast í markaðsherferð til þess að styrkja ímynd bandalagsins. Bandalagið virðist svo sannarlega í einhvers konar tilvistarkreppu því til þess að hjálpa sér hefur það fengið til liðs við sig einn aðalímyndarsérfræðing Coca-Cola fyrirtækisins. Frá þessu greinir The New York Times í gær.
Lögmæti bandalagsins í húfi
NATO fagnar sextíu ára afmæli sínu á næsta ári en á tímum alþjóðavæðingar og brottnám gömlu austur og vestur blokkanna þarfnast bandalagið greinilega endurskipulagningar á hugmyndafræði sinni. Hér áður fyrr stóð NATO vörð um vestrið gegn austrinu en í dag eru aðalvígstöðvarnar í Afganistan og fundarsölunum í Brussel.
Ef fólk finnur ekki tenginguna á milli þess hvað hermennirnir eru að gera og þeirra eigin öryggi, þá er lögmæti [NATO] í húfi," sagði Jean- François Bureau, háttsettur embættismaður hjá NATO, í viðtali við The New York Times.
Álit almennings versnar
Nýlegar viðhorfskannanir eru NATO ekki í hag. Þrátt fyrir að fjöldi þeirri sem telja að NATO sé nauðsynlegt fyrir öryggi heimsins aukist um 4% í Bandaríkjunum frá árunum 2002 til 2007 dregst hann saman um 19% í Þýskalandi, 13% í Ítalíu og 12% í Bretlandi.
Þess fyrir utan er talið að aðeins mjög lítill hluti íbúanna innan NATO þekki almennilega hvert hlutverk og tilgangur bandalagsins er.
Danir borga fyrir NATO TV
Til að mæta þessari ímyndarkreppu NATO hefur bandalagið sett á laggirnar sérstaka sjónvarpsstöð á netinu en hún verður í upphafi fjármögnuð af Dönum. Tilgangur hennar verður að koma í veg fyrir síur óháðra fjölmiðla sem talsmaður NATO segir að einblíni of mikið á neikvæðar fréttir.
Ráðamenn í Brussel gera sér grein fyrir að þeir standa frammi fyrir erfiðu verkefni og að breyta ímynd NATO hefst ekki yfir eina helgi. Þeir vita að upprunalegur tilgangur bandalagsins er brostinn og spurningin er því einfaldlega: Hver er tilgangur NATO?"
Um bloggið
Baldur Fjölnisson
Nýjustu færslur
- Torfi Stefáns bannaður ævilangt
- OL í skák. Landinn malaði Keníu í 9. umferð
- OL í skák: Landinn í 88. sæti eftir 8 umferðir
- Meðaljónar í skákinni
- Baggalútur - Sagan af Jesúsi
- Eitrað fyrir lýðnum?
- Óvenjulega döpur taflmennska innfæddra einkennir Reyjavíkursk...
- U.S. Rushes Coolant to Japanese Nuke Plant After Earthquake
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 116383
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kjartansson
-
Björgvin Gunnarsson
-
Brynjar Jóhannsson
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
FreedomFries
-
Fríða Eyland
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Gestur Guðjónsson
-
Gils N. Eggerz
-
Gullvagninn
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Gísli Hjálmar
-
Hagbarður
-
Halla Rut
-
Haraldur Haraldsson
-
Hilmar Kári Hallbjörnsson
-
Hlekkur
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Aðalsteinn Jónsson
-
Jón Ragnarsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Karl Tómasson
-
Kári Magnússon
-
Loopman
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Promotor Fidei
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sandra María Sigurðardóttir
-
SeeingRed
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Þórðarson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
el-Toro
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Tryggvi Hjaltason
-
TómasHa
-
Túrilla
-
Upprétti Apinn
-
gudni.is
-
haraldurhar
-
proletariat
-
Ívar Pálsson
-
Ómar Ragnarsson
-
Ónefnd
-
Óskar
-
Óskar Helgi Helgason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórir Kjartansson
-
Arnar Guðmundsson
-
Bara Steini
-
Birgir R.
-
Birgir Rúnar Sæmundsson
-
brahim
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bwahahaha...
-
Dingli
-
eysi
-
Gestur Kristmundsson
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Hlini Melsteð Jóngeirsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
kreppukallinn
-
Kristín Magdalena Ágústsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Neo
-
Orgar
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rauði Oktober
-
Skákfélagið Goðinn
-
Sveinn Þór Hrafnsson
-
Vilhjálmur Árnason
-
Þór Ludwig Stiefel TORA
Athugasemdir
Að sögn Pedro Frankensheep, almannatengslastjóra NATO, eru það aðeins hagkvæmnisástæður sem ráða því að farið er í samstarf við Coca Cola. Kreppan á stríðsframleiðslumarkaðnum hefur valdið því að bandalagið situr nú uppi með miklar efnavopnabirgðir sem eru komnar yfir síðasta drápsdag (skv. áætlunum Pentagon og NATO frá 2003 áttu núna að vera í gangi amk. 5-6 þokkalega veltuaukandi stríð) og standast ekki lengur alþjóðlega drápsstaðla. Þannig að okkur datt í hug, sagði Pedro, að þeir þarna hjá Coke gæti notað þetta í drykkina hjá sér. Það er hægt að stilla þetta þannig af að neytendurnir svona veslist upp í rólegheitunum á 10-15 árum og þannig gefist tími til að rýja þá algjörlega inn að skyrtunni í lyfjakaupum, læknisþjónustu osfrv. Nú, fyrir 30 árum vorum við að spá í að nota aspartam sem efnavopn og þá í hefðbundnum hernaði ef svo má segja en Rumsfeld og félagar í lyfja-hernaðarmaskínunni fundu þá réttilega út að miklu sniðugra og arðbærara væri að nota það á allan almenning og það er ekki síst í ljósi þess glæsilega árangurs sem þar blasir við eftir 30 ár að við viljum gera enn betur.
Baldur Fjölnisson, 17.7.2008 kl. 15:11
Ég held að það séu "tæknileg mistök" (pr. Árni Johnsen) að ráða aðalímyndasérfræðing Coca Cola, því kók er ágætis drykkur og enginn vandi að selja hann. Þeir hefðu átt að ráða aðalímyndasérfræðing "McDonalds" hamborgarakeðjunnar. Sá maður hlýtur að vera kraftaverkamaður. Að geta selt þennan líka viðbjóð og það út um allan heim í þessu líka magni. Þegar ég segi "viðbjóð", þá er það ekki bara vegna þess að mér finnist McDonalds vondir á bragðið og fara illa í maga, heldur eru öll börnin og barnabörnin á því sama - og "bragð er að þá barnið finnur."
Sigurbjörn Friðriksson, 17.7.2008 kl. 17:46
Jamm, kókið er gott en fyrir alla muni ekki borða aspartam.
Annars tengist þessi ímyndarvandi þverrandi áhrifum ruslpósts og pólitíkusa og annarra raðlygara við veruleikahönnun almennings og kemur svo sem víða fram td. í fjármálakerfinu, krónískri fýlu á æðstu stöðum og svo framvegis.
Baldur Fjölnisson, 17.7.2008 kl. 18:16
Það er eitur sem skemmir í þér heilann, brisið og fleira, veldur sykursýki, krabbameini og fleiri kvillum.
Baldur Fjölnisson, 23.7.2008 kl. 16:42
Hvar fær maður "asparmat"'. Ég meina, hvar er það, til að geta forðast það? Ég held að þú sért farinn að tala í gátum eins og Véfrétt eða Nostradamus, Baldur minn Fjölnison.
Keðjur, Björn bóndi J
Sigurbjörn Friðriksson, 23.7.2008 kl. 18:17
Allt sem ég get sagt við þessu er
Baldur Fjölnisson, 23.7.2008 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.