Yfirstjórn Seðlabanka Íslands er í höndum forsætisráðherra og bankaráðs

Eins og skýrt kemur fram í lögum um Seðlabanka Íslands.

http://www.althingi.is/lagas/nuna/2001036.html

Bankastjórar Seðlabankans eru því undirmenn forsætisráðherra og bankaráðs sem er skipað af álþingi. Allar leiksýningar og sjónarspil um að þessir aðilar eigi að vera að vinna gegn markmiðum hvers annars eru því hlægilegar. 

Nú, ef undirmennirnir þarna í seðlabankanum eru í raun að stjórna forsætisráðherranum þá þarf auðvitað að hefja opinbera rannsókn á því. Geti forsætisráðherrann ekki haft stjórn á undirmönnum sínum - bankastjórum seðlabankans - þarf augljóslega að byrja á því að láta bankastjórana fara og ráði hann ekki heldur við að stjórna næsta gengi þarf að reka hann sjálfan. Það er alveg dagljóst. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

V. kafli. Stjórnskipulag.
22. gr. Yfirstjórn Seðlabanka Íslands er í höndum forsætisráðherra og bankaráðs svo sem fyrir er mælt í lögum þessum. Stjórn bankans er að öðru leyti í höndum bankastjórnar.
23. gr. Í bankastjórn Seðlabanka Íslands sitja þrír bankastjórar og er einn þeirra formaður bankastjórnar. Bankastjórn ber ábyrgð á rekstri bankans og fer með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru öðrum falin með lögum þessum.
Forsætisráðherra skipar formann bankastjórnar Seðlabankans [núverandi formaður bankaráðs er Halldór Blöndal, skipaður af Geir Haarde] og aðra bankastjóra til sjö ára í senn. Ekki er skylt að auglýsa þessi embætti laus til umsóknar. Aðeins er heimilt að skipa sama mann bankastjóra tvisvar sinnum. Þó má skipa bankastjóra sem ekki er formaður bankastjórnar og er á síðara skipunartímabili sínu formann bankastjórnar til sjö ára. Um endurskipun gilda ekki ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 16:37

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Nú, áður en félagi Davíð fór þarna í vistun í seðlabankanum var hann forsætisráðherra nærri því forever - sem sagt í yfirstjórn seðlabankans - en samt sagði hann Evu Maríu á ruslveitu ríkisins að hann hefði verið "vitlausasti maðurinn á staðnum" og ekkert botnað í því "sem sérfræðingarnir sögðu" þegar hann kom í seðlabankann. Með öðrum orðum; óteljandi skýrslur frá sérfræðingum seðlabankans höfðu farið inn í hans haus í fimmtán ár og aftur beinustu leið út án minnstu viðstöðu ! Þannig að hann var einmitt rétti maðurinn til að verða seðlabankastjóri. Svona getur það víst farið þegar menn pæla ekkert í hinu liðna en horfa þess í stað aðeins fram á veginn. Hahahaha.

Þetta er víst efnahags- og peningamálastefna í anda limbódansins. Þegar óhæfir menn eru settir í lykilembætti þarf sífellt að lækka rána fyrir þá sem safnast í kringum þá. Ef sýndarundirmaður er í raun yfirmaður og reiðir ekki vitið í þverpokum þá getur það óneitanlega haft áhrif á hverjir veljast sem sýndaryfirmenn hans. 

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 17:10

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hún hefur lengi staðið í mér þessi yfirlýsing Davíðs um fyrstu vitranir í seðlabankanum.

Góð skilgreining hjá þér og athygliverðar ályktanir.

Árni Gunnarsson, 16.7.2008 kl. 18:11

4 identicon

Endemis bullukollar allt saman. Þú hefur bent á aðsteðjandi vanda með árs fyrirvara, en væri kallaður eftiráspekingur.

Svo er farið út í "aðgerðir", og þær hafa þann eina tilgang að flytja vandann frá fyrirtækjunum sem sitja uppi með lagerana af húsnæði, yfir á barnafjölskyldurnar. Þær eru aðstoðaðar í að koma sér upp skuldsettu húsnæði sem falla mun um 30 til 40%.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 19:02

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Stjórnmál eru bísness og bísness er stjórnmál. Það er nú allt lýðræðið. Þetta snýst allt sem fyrr um veruleikahönnun og er afar hagsmunadrifið. Þegar hagsmunirnir stjórna verða náttúrulögmálin að víkja. Þess vegna er óhæfum mönnum sem auglýsingaruslpóstur og peningar hafa selt kjósendum ýtt sífellt hærra þrátt fyrir sífellt færri virkar heilafrumur sem fylgja óhjákvæmilega öldrun, endalaust farsímakjaftæði og heilasuðu á kostnað annarra, töfrakúra af ýmsu tagi og sífellt heiladauðari jábræður. Þetta verður smám saman vítahringur.

Ástæða þess að þið hafið aldrei heyrt eina einustu frumlega hugsun frá þessum aðilum er að þeir hafa enga raunverulega menntun. Þeir hafa fengið einhverjar gervigráður til málamynda frá einhverjum gerviháskólum eða jafnvel úr bréfaskóla eða kannski frá ófrægingarháskólum republikana í BNA eins og ákveðin ljós íhaldsins, ég nefni nú engin nöfn. Þegar hugmyndafræðina vantar þá forðast menn umræðu og ákveðin maskína fer í gang sem reynir að búa til hugsunarstoppara á borð við "samræðustjórnmál". Það gengur illa að klína kommúnisma á fólk nú orðið og þegar allir fyrirlíta orðið bandaríska fasista og siðleysi þeirra bítur ekki lengur hugsunarstopparinn "bandaríkjahatur" og þá er bara að finna upp eitthvað annað sem dregur athyglina frá eigin innihaldsleysi. 

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 19:02

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það var engin leið að hagga Adolf Hitler, hann var leiðtoginn sem vissi allt best og var að vinna stríðið fram á síðasta dag og landsmenn hans kóuðu með honum vegna þess að þeir trúðu á kraft "leiðtogans" (og voru náttúrlega rakkaðir niður ef ekki eitthvað enn verra ef þeir létu í ljós vantrú).

Hversu oft hafið þið heyrt spekinga hér á blogginu jappla um sína leiðtoga og hversu mikla einhverjir aðilar eigi að hafa af leiðtogahæfileikum? Jafnframt er því fylgt eftir af auglýsingaruslpósti (sem enginn heilvita maður kallar því hátíðlega nafni fjölmiðla). Hvað er lýðræðislegt við foringjadýrkun og ef menn festast í því fari hversu heiladauða foringja enda menn þá uppi með á endanum?? Hvað með Geir Haarde, Davíð Oddsson og Halldór Blöndal? Setur álþingi þá kannski lög sem banna neikvæðni? Þarf kannski að sækja um leyfi til stjórnvaldsins til að fá að mótmæla stjórnvaldinu opinberlega? Já þess þarf nú þegar.

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 19:37

7 identicon

Tek undir þetta sem þú ert að segja. Foringinn er fastur fyrir og foringjadýrkunin ræður ríkjum. 

Vandamálið er einfalt og hefur verið augljóst nánast öllum sem eitthvað hugsa um þessi mál. Það þarf að hreinsa út úr seðló. Það þarf að henda út í hafsauga þessari arfavitlausu hugmyndafræði, að ætla að lækka verðbólgu með stýrivöxtum. Kenningin virkar öfugt við það sem ætlað er og eykur verðbólgu uns allt hrynur saman eins og nú er að gerast.

Verkefni ríkisstjórnarinnar er einfalt: henda þessu liði út, bæði hugmyndafræðinni og liðinu sem er að framfylgja "tilrauninni".

Ríkisstjórn sem ekki kemur sér að þessu verki þarf að víkja.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 19:57

8 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ég ráðlegg ykkur að horfa á heimildarmynd á google video sem nefnist The great crash of 1929. Þar er rætt við fólk sem upplifði bæði hrunið sjálft og atburðarásina og áróðurinn sem leiddi til þess. Þið sjáið fljótt líkingarnar við nútímann, hvernig keyptur ruslpóstur (sem ekki einu sinni eigin starfsmenn eru lengur nógu siðlausir til að kalla því hátíðlega nafni fjölmiðla) og keypt stjórnmálagögn hömruðu á hvað allt væri frábært og á uppleið allt þangað til spilaborgin hrundi. En þá starfaði þorri almennings við landbúnað og gat því furðanlega bjargað sér og sínum fæðuþörfum, núna hins vegar hefur flestum verið hrúgað inn í borgir og eru algjörlega upp á aðra komnir. Það er skelfileg tilhugsun, satt að segja.

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 20:37

9 identicon

Ég bíð eftir að sjá hvaða barbabrellu þeir koma með þegar hrunið verður augljóst og ekki verður lengur hægt að segja að botninum sé náð og þetta sé bara snertilending.

Hvernig ætla þeir að klína þessu á einhverja aðra, þeir hafa jú stjórnað öllu samann nærri því forever, eins og þú segir. Þeir eru að reyna að koma þessu á spákaupmenn og undirmálslán í US, en fólkið er ekki alveg að kaupa það.

Þurfa þeir ekki að sprengja stjórnina og láta VG og framsókn taka við með samfylkingu? Eftir nokkur ár þá verða þeir lausir allra mála og geta kent hinum vitleysingunum um allt saman.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 20:53

10 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þjóðnýting blasir við á því sem frjálshyggjan er búin að hreinsa innan úr og við sjáum nú þegar forsmekkinn af því í BNA og Bretlandi. Þetta snýst um samþjöppun auðs og valds og miðstýringu og sameiningu fyrirtækja og ríkis og skiptir í sjálfu sér ekki miklu máli hvernig það er nákvæmlega framkvæmt, hvort ríkið yfirtekur fyrirtækin eða fyrirtækin ríkin. Niðurstaðan verður nokkurn veginn hin sama. Millistéttinni verður útrýmt og eftir stendur fámenn valdaelíta sem allt á og öllu ræður og leiguliðar hennar. Síðan er hægt að snúa sér af alvöru að því að fækka pöpulnum í samræmi við burðargetu jarðarinnar og auðlinda hennar.

Við þurfum að hafa í huga að eiginleg menningarsamfélög mannsins hafa verið að þróast í tugi þúsunda ára amk. en einræðis- og alræðiskerfi kónga- og prestavalds fór ekki að bresta fyrr en fyrir þetta 300 árum. Þannig að núverandi kerfi er ekki endanlegt og hefur raunar verið í þróun og tilraunum. Valdaelíta heimsins hefur reynt kommúnisma og fasisma og svokallað lýðræði og spilað þessu hverju gegn öðru til að rugla lýðinn og það stig þróunarinnar sem við sjáum í dag er eins konar dæetfasismi Evrópusambandsins og harðari útgáfa hans í BNA. Þetta spilar síðan með einræðiskerfi Kína en allt leitar þetta að sömu niðurstöðu, einhvers konar alræði. Nákvæmlega á hvaða stigi það verður eftir næstu td. 10-20 ár þróunar þess er erfitt að segja. Hönnun af þessu tagi tekur tíma og þarf stöðugleika og öruggan heilaþvott og þægan ruslpóst og pólitíkusa. Hins vegar er hraði nútímans gífurlegur á öllum sviðum og upplýsingabyltingin ótrúleg og peningaófreskjan vaxin öllum ríkisapparötum langt yfir höfuð þannig að hugsanlega hefur valdaelítan misst tökin og ræður ekki lengur ferðinni. Sívaxandi fjármálakrísur og tryllingslegar terror- og stríðsleiksýningar síðasta áratuginn td. gætu bent til þess.

Fyrir hundrað árum sagði Lenin að kommúnisminn myndi aðeins endast í nokkra áratugi í mesta lagi og við taka kerfi sem hvorki væri kommúnismi né kapítalismi heldur eitthvað þar á milli. Og hann byggði það að sjálfsögðu á kenningum Marx sem eins og Lenin var kostaður af stórkapítali í tilraunastarfsemi með heiminn. Hafið þetta í huga á meðan þið horfið á millistétt vesturlanda barða niður. 

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband