Er eitthvað að marka opinbera hagtalnahönnuði ríkisins ?

Allt í einu finna þeir út að atvinnuleysið sé 3.1% en samt hafa ruslveitur og pólitíkusar haldið því fram síðasta árið að það sé aðeins 1%. Ég tel víst að margir hér hafi tekið eftir þessu.

Skv. The Economist frá 5/7 var það 1% á fyrsta ársfjórðungi 2008 og að sjálfsögðu hafa þeir það frá hérlendum opinberum hagtalnahönnuðum.

Er kannski verið að endurskilgreina hugtakið atvinnuleysi? Æfingarnar við að reikna niður verðbólgu eru ævintýralegar. Hagtölur eru hápólitískt málefni eins og gefur að skilja og mikið í húfi að leiktjöldin séu sannfærandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Innlent | fös. 11.7.2008

Atvinnuleysi mælist 1,1% í júní Skráð atvinnuleysi í júní 2008 var 1,1% eða að meðaltali 1.842 manns, sem eru 103 fleiri en í maí sl. eða um 6% aukning. Atvinnuleysi var 1% á sama tíma í fyrra.Atvinnuleysi jókst á höfuðborgarsvæðinu um 18% í júní en minnkaði á landsbyggðinni um 7% .Atvinnuleysi kvenna jókst meira en meðal karla á höfuðborgarsvæðinu en minnkaði meðal kvenna á landsbyggðinni, svo og meðal karla þar.....

mbl.is

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 14:24

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Viðskipti | mið. 11.6.2008

Atvinnuleysi mældist 1% í maí

Skráð atvinnuleysi í maí var 1% og voru þá að jafnaði 1739 manns á atvinnuleysisskrá, sem eru 22 fleiri en í apríl sl. Atvinnuleysishlutfallið var óbreytt frá því í apríl en í maí í fyrra var atvinnuleysið 1,1%. Vinnumálastofnun býst við auknu atvinnuleysi í júní og að það verði á bilinu 1-1,3%. Samkvæmt tölum á vef stofnunarinnar voru 2223 skráðir atvinnulausir í dag.

Meira

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 14:26

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Viðskipti | þri. 13.5.2008

Atvinnuleysi mældist 1% í apríl

Skráð atvinnuleysi í apríl 2008 var 1% eða að meðaltali 1.717 manns, sem eru 43 fleiri en í mars sl. eða rúmlega 2% aukning. Atvinnuleysi er um 8% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,1%. Í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar kemur fram að útlit sé fyrir að atvinnuleysi muni lítið breytast í maí og verða á bilinu 1-1,2%.

Meira

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 14:28

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Og svo framvegis.

Hvaða sofandi sauður þarna í ríkisstjórninni er aftur yfir hagtalnahönnun ríkisins?

Baldur Fjölnisson, 16.7.2008 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband