Ríkið ábyrgist fjármálamarkaði

Frétt af mbl.is

„Gildra fyrir birni verður að koma á óvart"

Viðskipti | mbl.is | 2.4.2008 | 10:48
Mynd 179852 Íslensk stjórnvöld undirbúa að hafa bein afskipti af gjaldeyris- og hlutabréfamarkaði til þess að koma í veg fyrir árásir erlendra vogunarsjóða á íslenskan fjármálamarkað. Með þessu vilja stjórnvöld refsa þeim sem eiga hlut að máli, samkvæmt frétt á vef Financial Times. Þar er haft eftir Geir H. Haarde, forsætisráðherra, að hann vilji ekki gefa upp hvernig afskiptum verði háttað. „Gildra fyrir birni verður að koma á óvart".
Lesa meira
 
 --------------------------------------------------
 
Þessi plön virka nú frekar desperat og skapa heldur vafasamt fordæmi.
 
Þau færa ábyrgð frá stjórnendum fyrirtækja og markaðnum sjálfum til stjórnmálamanna eins og þeir nú eru. Til skamms tíma kann þetta að skila hækkunum en til lengdar mun trúverðugleiki fyrirtækja og markaðarins án efa hrynja. Lántökur ríkissjóðs munu rústa lánshæfi hans og bankanna líka.
 
 
 
 
 

 

 

 
 

 
 
 
 

mbl.is „Gildra fyrir birni verður að koma á óvart"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Bear-trap er svosem þekkt fyrirbæri og er skemmst að minnast slíkum appírötum í sambandi við árásirnar á Hong Kong Dollarinn.

Svo var reynt að egna eina slíka núna þegar ráðist var að írskum bönkum og í raun peningakerfi þeirra.

ATH!!!! Írland er hluti af ,,fyrirheitna Evrópusambandinu/landinu" sem leysa á allar okkar raunir og létta öllum allar byrgðar.

Bullukollarnir á vinstri vængnum eru jú óendanlega vtlausir og einfaldir með afbrygðum. 

Manstu eftir því hvað Gylfi gerði, þegar kippt var í spottann.   Þá hljóp hann upp og sagði eitthvað á þessa leið  ; Leggja niður styrki til Landbúnaðar, Verðtryggja allt og ganga í norræn sambönd

Nú er sonur hans enn ötulli ; leggja niður lLandbúnað, Krónuna, ganga í Evrópusambandið og hætta að fást við fiskveiðar.

Vonandi lagast þessir menn en restin, sem ég hef ekki enn nennt að telja upp eru: 

Skítapakk og þeir sem betur mega sín raðlygarar, óyndismenn og óþjóðalýður með Landráðatilhneigingum.

Svo segir litla kvikindið sem hefur ofnmetnast á því að Ingibjörg setti hann til punts (sér er nú hvert puntið) í stól Viðskiptaráðherra, að það sé SMJÖRKLÍPA að ráðist sé að rótum peningakerfis okkar.

Við hverju er að búast næst??

Ég bara spyr sí svona

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 2.4.2008 kl. 15:11

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Almennt séð ætti markaðurinn sjálfur að egna sínar gildrur og gerir það svo sem upp og niður.

Vogunarsjóðir, skortsalar, birnir - allt hefur þetta sitt hlutverk og eykur veltu og hreyfingu á mörkuðum og gerir þá skilvirkari. Það er óðs manns æði að ætla að rugla hlutabréfamarkað með einhverjum stórum ríkiskaupum en sjálfsagt öruggasta og fljótvirkasta aðferðin til að gjöreyða trúverðugleika markaðarins.

Baldur Fjölnisson, 2.4.2008 kl. 15:24

3 identicon

Bjarni, hvenær eignaðist landbúnaðarbáknið Íslensku þjóðina? Var það ekki á dögum Jónasar frá Hriflu? Halló! Má ekki snerta við þessu bákni.

Þeir segja að allt kerfið hrynji ef verð á kjúklingum og svínakjöti lækkar. Ég kaupi ekki svoleiðis þvælu. Þeir verða að hagræða hjá sér eins og aðrir. Það vinna ekki nema 90 manns við þessa grein, og öll þjóðin í gíslingu vegna þeirra.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 15:25

4 identicon

Setti þarna eftir mynni að þetta væru 90, en það eru 80 sem vinna við kjúklingarækt + 170 við úrvinnslu.

Í svínakjötinu eru um  400 í heildina.

Eflaust ekki spennandi störf.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 21:42

5 Smámynd: Ívar Pálsson

Gildur gjaldeyrissjóður Seðlabanka eða ríkis gæti fælt spekúlanta frá stórum áhlaupum en hann er ekki þannig í dag og var ekki gildur. En ábyrgðir eru út í hött.

Ívar Pálsson, 3.4.2008 kl. 00:39

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ég á nú ekki við beinlínis formlegar ábyrgðir heldur frekar áróðurslegar.

Baldur Fjölnisson, 3.4.2008 kl. 09:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband