Fimmskipt ríkisvald á klakanum veldur síversnandi ruglanda

Það er þetta hefðbundna. Löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Síðan er það [trumbusláttur og þrumur] Guð, sem er einhvers konar háyfirvald og furðu margir pólitískir ruglustrumpar telja hreint ekkert óeðlilegt að hafa einhvers konar samráð við hann les:raddir í sínum eigin ruglaða haus. Síðan erum við með afsakið einsmannsyfirríkisstjórnina í seðlabankanum sem enn starfar eftir hinu kunnuglega einsmannslýðræðiskerfi.

Þessi vitleysa er hætt að vera á færi hefðbundinna stjórnmálafræðinga og siglir hratt inn í verksvið sálfræðinga og geðlækna enda konfliktarnir hrikalegir og afar áberandi. Hugsanir? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já þú segir nokkuð Baldur he he...

Einsmannsyfirríkisstjórnin ,,, skemmtilegt orð.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.2.2008 kl. 23:53

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Einsmannsyfirríkisstjórnin hefur bara fært sig um set og í rauninni múlbundið sjálfa sig vegna þess að enginn tók lengur mark á henni. Síðan hefur hún stjórnað í hljóði. Því betur sem almenningur gerir sér grein fyrir þessu geðveikislega alræðisskipulagi eða dæetfasisma eða hvað á að kalla þennan óskapnað því ósýnilegri verða strengjabrúðurnar í undirríkisstjórninni.

Þetta hefur trúlega mikið með að gera hefðbundið og langvarandi og rótgróið erlent eignarhald á innlendum "foringjum". Jónas frá Hriflu kom vel heilaþveginn úr fasistaskóla Ruskins (Fabianismi) og hannaði stjórnmálaflokka samkvæmt því og vel vandir breskir leppar svissuðu seinna sjálfvirkt yfir í kanann. Stundum verða afföll hjá melludólgunum og einn tekur gjarnan yfir svæði sem annar réð og mellur annars en þær trekkja áfram á sínu götuhorni  eins og ekkert hafi í skorist.  

Baldur Fjölnisson, 7.2.2008 kl. 00:46

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Það eina sem ég get hugsað um núna er rúmið, kominn nánast morgun...var að renna í gegnum fyrirlesturinn sem Alfreð S póstaði með LEAP gaurnum Christ þar sem hann heldur fyrirlestur fyrir Rótary pakk í Portland...og stóð sig glimrandi vel.

...en góðar pælingar.

Georg P Sveinbjörnsson, 7.2.2008 kl. 04:19

4 identicon

Já, góð greining þarna.

Síðan eru ríkislögreglustjóri og skattrannsóknarstjóri enn ein stjórnvöldin sem heyra undir dæet Stalín.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 116230

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband