Skipulagða svikastarfsemin í skólakerfinu, frh.

Vísir, 13. des. 2010 19:37

Standa sig verr í Háskóla Íslands

Ólafur H. Johnson, skólastjóri og einn eigandi Hraðbrautar.
Ólafur H. Johnson, skólastjóri og einn eigandi Hraðbrautar.

Nemendur úr Hraðbraut standa sig verr í Háskóla íslands en nemendur úr öðrum menntaskólum. Þetta kemur fram í skýrslu menntamálanefndar um málefni Hraðbrautar, en hún er áfellisdómur yfir stjórnendum skólans.

Menntamálanefnd hefur verið með málefni Hraðbrautar til umfjöllunar eftir að skýrsla Ríkisendurskoðunnar leiddi meðal annars í ljós að Hraðbraut hefði greitt 82 milljónir króna í arð til eigenda sinna árin 2003 til 2009, á sama tíma og ofgreiðslur ríkisins til skólans námu 192 milljónum.

Nefndin segir að skýrsla Ríkisendurskoðunar sé þungur áfellisdómur yfir fjármálaumsýslu og rekstrarháttum eigenda og stjórnenda Hraðbrautar. Meðferð þeirra á fjárframlögum úr ríkissjóði sé sérstaklega ámælisverð.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið er einnig gagnrýnt fyrir að hafa brugðist í grundvallaratriðum eftirlitsskyldu sinni með framkvæmd þjónustusamningsins við Hraðbraut.

Auk þess sem fjárhagsleg óreiða einkennir rekstur hraðbrautar bendir skýrslan á að frammistaða nemenda skólans er undir meðallagi þegar í Háskóla Íslands er komið.

Eins og fram hefur komið greiddu eigendur Hraðbrautar sér 82 milljónir króna í arð, en þetta eru ekki einu arðgreiðslurnar sem mentnamálanefnd fjallar um því svo virðist sem eigendur skólans hafi greitt sér umtalsverðan arð út úr einkahlutafélaginu Faxafen.

Faxafen hefur tekjur sínar af því að leigja Hraðbraut ehf. skólahúsnæði en félagið Faxafen er einmitt í eigu skólastjóra Hraðbrautar og eiginkonu hans.

Frá því að félagið var stofnað hafa arðgreiðslur úr því numið 95 milljónum króna, samkvæmt þeim ársreikningum sem nefndin hefur skoðað.

Hægt er að skoða skýrsluna með því að klikka á hlekkinn hér að neðan.

http://visir.is/standa-sig-verr-i-haskola-islands/article/2010982664952

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Þetta glæpahyski, Ólafur H. Johnson og kona hans eru svo gegnsýrð af spillingu að það tekur engu tali.

Það sem ætti að gerast, er að ríkið þvingi Faxafen ehf. í gjaldþrot, taki húsnæðið og allt innviði upp í skuldina og fái aðra (heiðarlega) rekstraraðila til að sjá um Hraðbrautina. Síðan á að sækja hyskið til saka, dæma það fyrir gróf fjársvik og setja það á biðlista.

Það sem hins vegar mun gerast er að Ólafur verður skorinn úr snörunni og fær annað tækifæri. Ég veit ekki hvernig, en ég er svo viss um að hann flýtur ofan á, ef hann togar í nógu marga spotta. Ég kannast við annan einstakling sem hefur getað framið hvert lögbrotið á fætur öðru, einungis af því að hann þekkir nógu marga embættismenn.

Vendetta, 13.12.2010 kl. 23:54

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þetta er bara smotterí. Í Tækniskólanum sem áður var Iðnskólinn eru tveir skólameistarar sem kosta 40 milljónir auk annars hlægilegs stjórnunarkostnaðar - skipulega gjaldþrota martröð sem sérvalinn pólitískur úrgangur dömpaði á skattgreiðendur, líkt og bankana.

Baldur Fjölnisson, 30.12.2010 kl. 02:47

3 Smámynd: Vendetta

Í annarri nýrri frétt er haft eftir Ólafi H. Johnson, að Hraðbraut skilaði hagnaði og gæti haldið áfram. Engin furða, úr því að skólinn fékk ofgreitt frá ríkinu. Allavega þá heldur Hraðbraut ekki áfram eftir áramót, enda búið að auglýsa húsnæðið að Faxafeni 10 til leigu.

Tveggja ára menntaskólanám er mjög góð hugmynd fyrir þá sem hafa þroska til þess, líka sem einkaskóli. En það þarf eins og í öllum öðrum fyrirtækjum og stofnunum hæfa stjórnendur, ekki þjófa og fjársvikara, sem fengu til lags við sig menntamálaráðherra (Þorgerði) sem heldur ekki hefur hreint mjöl í pokanum og datt aldrei í hug að athuga hvernig farið var með féð frá ríkinu. Í raun og veru mætti stytta 4ra ára menntaskólanám niður í 3 ár. En Katrín Jakobs myndi aldrei fallast á það.

En í sambandi við nýrri fréttina, sem ég minntist á, var einn sem bloggaði um Hraðbraut. Hann bölvaði Katrínu í sand og ösku, en hrósaði Ólafi upp í hástert og fékk svo jábræður sína (hugsanlega með sömu IP-tölu) að taka undir með sér. Engum af þeim fannst neitt athugavert við þetta stórfellda svindl Ólafs (Jón Ásgeir, take two). Ég þorði ekki að skrifa athugasemd við það blogg að ótta við að verða rakkaður niður.

  • Hraðbraut, já takk.
  • Ólaf Johnson, nei takk.

Vendetta, 30.12.2010 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldur Fjölnisson

Höfundur

Baldur Fjölnisson
Baldur Fjölnisson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2045164784 9dea341f49 o
  • miracle
  • ...ap_20poll

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband